fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Ítalir þrengja að óbólusettum – Fá ekki lengur að fara á veitingahús og íþróttaviðburði

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 25. nóvember 2021 08:00

Ítalir herða aðgerðir gegn óbólusettum. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hringurinn þrengist um óbólusetta á Ítalíu. Nú hefur ríkisstjórnin ákveði að frá og með 6. desember megi óbólusettir ekki fara á veitingastaði, í kvikmyndahús eða á íþróttaviðburði.

Fram að þessu hafa óbólusettir getað fengið aðgang með því að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr sýnatöku.

Að auki verður öllum lögreglu- og hermönnum nú gert skylt að láta bólusetja sig og það sama á við um starfsfólk skóla. Fram að þessu hefur þessi krafa aðeins náð til starfsfólks á sjúkrahúsum og víðar í heilbrigðiskerfinu.

Markmiðið með þessu er að stöðva „hæga en jafna“ aukningu smita og tryggja að efnahagsleg endurreisn þessa þriðja stærsta hagkerfis ESB verði ekki ógnað. Þetta sagði Mario Draghi, forsætisráðherra, en 8,9% efnahagssamdráttur var á Ítalíu á síðasta ári.

Fyrr í mánuðinum sögðu fulltrúar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO að Evrópa sé nú miðpunktur heimsfaraldursins og styðja nýjustu tölur um smit þetta. Þær sýna að flest Evrópuríki berjast nú við nýja og stóra bylgju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér