fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
Pressan

Leynileg skýrsla Bandaríkjahers – Flugmenn hafa séð 300 fljúgandi furðuhluti

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 31. október 2021 22:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá 2004 hafa bandarískir herflugmenn séð að minnsta kosti 300 fljúgandi furðuhluti á flugi. Talið er að sumir þessara hluta séu frá Rússlandi og Kína en ekki nærri því allir.

„Við vonum að það séu ekki óvinir okkar hér á jörðinni sem ráða yfir tækni af þessu tagi,“ sagði Bill Nelson, yfirmaður hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA, nýlega þegar hann ræddi við nemendur við Virginíu háskóla um líkurnar á lífi utan jarðarinnar.

„Hver er ég að segja að plánetan jörðin sé eini staðurinn þar sem líf, sem er eins þróað og skipulagt og okkar, þrífst,“ sagði Nelson. Quartz skýrir frá þessu.

„Eru aðrar plánetur eins og jörðin? Það held ég í alvöru því alheimurinn er svo stór,“ sagði hann einnig.

Hann ræddi einnig um skýrslu um fljúgandi furðuhluti sem var gerð opinber í sumar. Skýrslan var einnig afhent bandaríska þinginu og er sú útgáfa öllu ítarlegri því í henni eru kaflar sem eru ekki ætlaðir almenningssjónum.  Í skýrslunni gerði varnarmálaráðuneytið grein fyrir tilfellum þar sem bandarískir herflugmenn hafa séð fljúgandi furðuhluti.

Í skýrslunni kemur ekkert fram sem staðfestir að um hluti á vegum vitsmunavera frá öðrum plánetum sé að ræða en þeim möguleika er heldur ekki hafnað. Í skýrslunni kemur fram að eðlilegar skýringar hafi fundist á 144 tilfellum þar sem bandarískir herflugmenn sáu óþekkta fljúgandi furðuhluti.

Nelson, sem hefur lesið leynilega hluta skýrslunnar, sagði að bandarískir herflugmenn hafi tilkynnt um að minnsta kosti 300 tilfelli þar sem þeir sáu óþekkta fljúgandi furðuhluti frá 2004. „Ég hef rætt við þessa flugmenn og þeir vita að þeir sáu eitthvað og ratsjá þeirra sá það einnig og skyndilega birtist þetta við hliðina og síðan fyrir ofan,“ sagði hann að sögn Washington Examiner.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?
Pressan
Í gær

Fimm börn dáin eftir að hafa fengið kíghósta

Fimm börn dáin eftir að hafa fengið kíghósta
Pressan
Fyrir 3 dögum

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja að kviðdómur hafi átt erfitt með að halda niðri í sér hlátrinum í gær

Segja að kviðdómur hafi átt erfitt með að halda niðri í sér hlátrinum í gær
Pressan
Fyrir 5 dögum

Óhugnanleg uppgötvun undir húsi eins valdamesta nasistans

Óhugnanleg uppgötvun undir húsi eins valdamesta nasistans
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalir hafa fengið nóg – Sekta fólk fyrir að vera á sundskýlunni eða bikiní einu saman

Ítalir hafa fengið nóg – Sekta fólk fyrir að vera á sundskýlunni eða bikiní einu saman