fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
433Sport

Telur ólíklegt að Gerrard taki við Newcastle – „Næsta skref er að taka við Liverpool“

Helga Jónsdóttir
Sunnudaginn 24. október 2021 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, finnst afar ólíklegt að Steven Gerrard vilji fara frá Rangers og taka við stjórastöðunni hjá Newcastle.

Gerrard hefur verið knattspyrnustjóri skoska liðsins Rangers frá 2018 og gerði liðið að skoskum meisturum á síðasta tímabili.

Fjölmiðlar hafa fjallað um að Gerrard sé ofarlega á lista yfir næstu stjóra Newcastle eftir að nýir eigendur keyptu klúbbinn fyrr í mánuðinum. Þá hefur fyrrum liðsfélagi hans hjá enska landsliðinu, Frank Lampard, einnig verið orðaður við starfið. Ferdinand finnst þó afar ólíklegt að Gerrard vilji starfið þar sem hann stefni á stjórastöðuna hjá Liverpool.

„Ég hef séð nafnið hjá Steven Gerrard í umræðunni. En ég sé hann ekki fara þangað því mér finnst eins og hann stefni á Liverpool,“ sagði Ferdindand í þættinum Rio Ferdinand Presents FIVE.

„Hversu lengi verður Klopp hjá Liverpool? Mér finnst líklegt að næsta skref hjá Gerrard verði að taka við Liverpool en ekki Newcastle.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt mark Caicedo í dag – Skoraði frá miðju

Sjáðu stórkostlegt mark Caicedo í dag – Skoraði frá miðju
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Reynsluboltarnir munu framlengja við Real Madrid

Reynsluboltarnir munu framlengja við Real Madrid