fbpx
Fimmtudagur 25.desember 2025
433Sport

Pepsi Max deild karla: Stórsigur KR á Meistaravöllum í kvöld

Helga Jónsdóttir
Mánudaginn 26. júlí 2021 21:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KR tók á móti Fylki í 14. umferð Pepsi Max deildar karla á Meistaravöllum. Þar sigraði KR örugglega og vann 4-0 stórsigur.

KR-ingar komu grimmir til leiks og voru frábærir í dag. Atli Sigurjónsson kom KR yfir strax á 9. mínútu með frábæru marki. Óskar Örn Hauksson tvöfaldaði forystuna á 38. mínútu þegar hann potaði boltanum yfir línuna eftir skot frá Kennie Chopart. Þannig stóðu leikar í hálfleik.

KR hélt áfram af sama krafti í seinni og skoraði Kristján Flóki þriðja markið á 56. mínútu. Ægir Jarl Jónasson gulltryggði svo sigur KR með fjórða markinu á 78. mínútu.

Þetta þýðir að KR fer upp í 3. sæti deildarinnar. Fylkir er í 9. sæti, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.

KR 4 – 0 Fylkir
1-0 Atli Sigurjónsson (´9)
2-0 Óskar Örn Hauksson (´38)
3-0 Kristján Flóki Finnbogason (´56)
4-0 Ægir Jarl Jónasson (´78)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Óvænt félag í umræðuna um Lewandowski

Óvænt félag í umræðuna um Lewandowski
433Sport
Í gær

Kristján ósáttur eftir uppákomu í Sky Lagoon – „Var búinn að borga 30 þúsund kall fyrir þetta“

Kristján ósáttur eftir uppákomu í Sky Lagoon – „Var búinn að borga 30 þúsund kall fyrir þetta“
433Sport
Í gær

Fór um áhorfendur eftir þessi subbulegu meiðsli í London í gær – Mynd

Fór um áhorfendur eftir þessi subbulegu meiðsli í London í gær – Mynd
433Sport
Í gær

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni