fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fókus

Óvenjuleg störf fegurðardrottningarinnar – „Ég myndi ekki hætta þó mér yrði boðinn allur heimurinn“

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 22. júlí 2021 22:30

Samsett mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin ástralska Robyn Morrison hefur keppt í fegurðarsamkeppnum í meira en 10 ár, og er gríðarlega sigursæl í þeim bransa. Það er þó einungis aukastarf, en hún hefur komið víða við. Mirror greinir frá þessu.

Þessa stundina starfar hún sem útfararstjóri á daginn og á kvöldin kennir hún ungum klappstýrum að dansa. Ekki nóg með það, heldur starfaði hún áður fyrr sem leynilögreglukona.

„Mest gefandi starf sem hugsast getur“

Í dag er Robyn 45 ára gömul, og býr í Yorkshire-sýslu á Bretlandi. Hún segir að útfararstjórastarfið sé erfitt. Það snúist um að tala við fólk og veita því stuðning á erfiðum tíma í lífi þess. Hún fær að heyra óskir þess um hvað skuli gera í jarðarförum, sem gengur til að mynda út á að hjálpa syrgjendum að velja líkkistur og hverskonar tónlist eigi að spila í útförinni.

„Þetta er fjölbreytt starf. Ég myndi ekki hætta þó mér yrði boðinn allur heimurinn. ég lýt nefnilega svo á að hjálpa fjölskyldum í gegn um sorgartíma er mest gefandi starf sem hugsast getur.“ segir hún.

Robyn hefur dansað frá barnsaldri, og líkt og áður segir kennir hún einnig ungum klappstýrum að dansa. Það gerir hún á kvöldin, þegar hún er búin á kvöldvöktunum á útfararheimilinu.

Hún hefur einnig keppt í fegurðarsamkeppnum um allan heim, og vann síðast keppni í Las Vegas árið 2017, síðan hefur hún tekið sér pásu, en hyggst þó snúa aftur í ágúst. Hún hefur unnið til verðlauna í flestum keppnum sem hún hefur tekið þátt í, en segir aðalatriðið ekki vera að vinna.

„Ef ég vinn ekki þá skiptir það ekki máli. Ég geri þetta fyrir góð málefni, og til þess að hita mismunandi fólk. Ég nýt þess í botn að keppa.“

„Þarna áttu ömurlegir hlutir sér stað“

Í viðtali við Daily Mail frá árinu 2012 fjallaði Robyn um ferill sinn í lögreglunni, sem stóð yfir í tíu ár á meðan hún bjó í Ástralíu. Hún byrjaði 18 ára sem hefðbundinn lögregluþjónn, en færði sig svo yfir í leynilögregluna. Þar var hún dulbúin sem fíkill og starfaði í hverfi í Sidney sem þykir ansi hættulegt.

Hún lýsti átökum sem hún lenti í, til að mynda missti hún einu sinni framtennurnar í slagsmálum við lögregluþjóna sem vissu ekki að hún væri í dulargervi. Robyn sagði að starfið hafi verið mjög erfitt, en hún sjái ekki eftir því:

„Þarna áttu ömurlegir hlutir sér stað, en það hefur ekki eyðilagt mig. Ég finn ekki fyrir andlegum kvilla vegna starfa minna. Ég sé ekki eftir þessu.“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

David endar á Ítalíu
Fókus
Í gær

Sjaldséð sjón: Goðsögn frá sjöunda áratugnum mætti á rauða dregilinn

Sjaldséð sjón: Goðsögn frá sjöunda áratugnum mætti á rauða dregilinn
Fókus
Í gær

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Klæddist svörtum litlum kjól á 76 ára afmælisdaginn

Klæddist svörtum litlum kjól á 76 ára afmælisdaginn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Arnmundur Ernst um móðurmissinn: „Það vissu allir hvað við vorum að ganga í gegnum“

Arnmundur Ernst um móðurmissinn: „Það vissu allir hvað við vorum að ganga í gegnum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“