fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fókus

Harpa var ellefu ára þegar henni var nauðgað

Bjarki Sigurðsson
Þriðjudaginn 22. júní 2021 11:00

Harpa í miðjunni ásamt þeim Tinnu Guðrúnu og Hlyni Kristni Mynd/aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harpa Diego er mögnuð kona sem gengið hefur hlykkjóttan veg í gegnum lífið en alltaf stendur hún upprétt og setur upp bros. Harpa er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Það er von en þar segir hún sögu sína sem helst líkist bíómyndahandriti, myndu sumir segja.

Harpa átti góða æsku og var mikil pabbastelpa, hún var mikið hjá föðurömmu sinni og fékk gamaldags uppeldi og trúarlegt eins og hún orðar það. Þegar Harpa var aðeins 11 ára gömul var henni nauðgað og var það fyrsta stóra áfallið sem breytti öllu í hennar lífi.

„Þetta var leyndarmálið mitt og ég sagði engum frá,“ segir Harpa en eftir þetta flutti hún til ömmu sinnar. Hún leitaði til huggunar í mat og talar um að hún hafi orðið feitasti unglingurinn í skólanum. Henni fannst hún ógeðsleg og vildi einungis vera með ömmu sinni og eldra fólki sem var gestkomandi á heimili þeirra.

Harpa byrjaði seint í neyslu hugbreytandi efna en áfengisneysla hennar hófst um 28 ára aldur, fram að því var hún fyrirmyndar húsmóðir með þrjú börn og gift æskuástinni.

„Hann var alkahólisti sem byrjaði að drekka mikið eftir vinnuslys og þá byrjaði ofbeldi líka. Ég ákvað einn daginn að prófa að drekka með honum, þá horfði ég í spegil í fyrsta skipti og hugsaði með mér að ég væri kannski svolítið sæt,“ segir Harpa.

Á einu ári fór Harpa úr því að vera þessi fyrirmyndar húsmóðir í það að missa börnin frá sér og Bakkus átti hana. „Bakkus var stóra ástin í lífi mínu.“

Hún hafði farið einu sinni á Vog en fallið stuttu eftir það. Eftir að hafa misst frá sér börnin reyndi Harpa nokkur sjálfsvíg og segir Guð vaka yfir sér.

„Ég man alltaf eftir því þegar það var verið að berja mig, þá tuggði ég 23. Davíðssálm í huganum,“ segir Harpa en leiðin lá beint niður á við og hún fór í harða neyslu. Hún hóf að stunda vændi og erótískt nudd.

Harpa tók mikla meðvirkni með sér út í lífið og kunni illa að setja fólki mörk. „Eftir eina meðferð flutti ég á Dyngjuna og í fór í AA, þar varð ég ástfangin.“

Það leið ekki á löngu þar til hún flutti til mannsins þrátt fyrir andstæðar ráðleggingar forstöðukonu Dyngjunnar og féllu þau í djúpa neyslu stuttu síðar á heimili hans. Harpa segir frá því hvernig neyslan þróaðist eftir þetta.

„Hann kom einn daginn með poka af sprautum úr apótekinu og fór að sprauta sig, ég bað hann að sprauta mig líka. Þessi maður beitti mig miklu líkamlegu ofbeldi og vaknaði ég þrisvar í öndunarvél eftir árásir af hans hálfu og vart hugað líf, í hvert skipti sat pabbi hjá mér,“ segir Harpa.

Hún reyndi við nokkrar meðferðir á þessum árum en það gekk brösuglega, hún segir frá ófáum augnablikum sem eru grátbrosleg en hún var ofurseld hugbreytandi efnum og stoppaði ekki þrátt fyrir að liggja fyrir dauðanum. Harpa bjó á tíma á gistiheimili í Reykjavík með manni.

„Þarna er mér byrlað ólyfjan, ég fór að slefa og þá var ég tjóðruð upp. Ég sá hann svo taka við peningum frá venjulegum mönnum í jakkafötum. Þarna var mér misþyrmt, þeir gerðu við mig það sem þeim þóknaðist, ég var jafnvel lamin. Stundum var einn, stundum tveir menn og einu sinni þrír. Ég var alltaf bundin. Ég var svo skilin eftir, bundin og blóðlaus í höndum. Ég þurfti að míga og skíta á mig, þetta var það langur tími, meðan hann fór að djamma fyrir peninginn.“

Líf Hörpu hefur einkennst af stórum áföllum en hún náði sjálf 11 ára edrúmennsku, á þeim tíma bjó hún í 10 mánuði með son sinn í Kvennaathvarfinu.  Hún féll eftir 11 ár.

„Eftir tvær til þrjár helgar var ég komin í leigubíl í apótek að kaupa sprautur og komin á sama stað, þetta fall var í 14 mánuði,“ segir Harpa.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“
Fókus
Fyrir 2 dögum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun