fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Tölvuþrjótar herja af miklum krafti á bandarísk fyrirtæki

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 18. júní 2021 22:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Smávægilegt aðgæsluleysi getur reynst fyrirtækjum dýrt. Því hafa mörg bandarísk fyrirtæki fengið að kenna á að undanförnu og ekki er annað að sjá en að enn fleiri eigi eftir að bætast í hópinn í framtíðinni. Ástæðan er að svokölluðum „gíslatöku“ árásum á tölvukerfi fyrirtækja hefur fjölgað mikið á síðustu árum.

CNBC segir að á síðasta ári hafi bandarísk fyrirtæki greitt sem nemur rúmlega 40 milljörðum íslenskra króna til tölvuþrjóta sem höfðu gert árásir á þau. Greiðslurnar fóru fram í rafmynt. Aukning á milli ára var 311%.

„Gíslatöku“ árásir virka þannig að tölvuþrjótum tekst að komast inn í tölvukerfi fyrirtækja og stofnana og læsa þeim þannig að fyrirtækin og stofnanirnar geta ekki notað þau. Þeir krefjast síðan greiðslu fyrir að opna aftur fyrir aðgang að þeim.

Þetta er útbreitt vandamál í Bandaríkjunum, meðal annars vegna þess að innviðir eru veikburða hvað þetta varðar sem og aðgerðir yfirvalda. Til dæmis hefur tölvuþrjótum tekist að brjótast inn í tölvukerfi löggæslustofnana og taka gögn þeirra í gíslingu.

Eitt umtalaðasta málið að undanförnu er þegar rússneskir tölvuþrjótar lömuðu olíudreifingu á austurströndinni eða allt þar til þeir fengu fimm milljónir dollara greidda í lausnargjald.

CNBC segir að þrátt fyrir að árásum af þessu tagi fjölgi þá séu það aðeins nokkrir vel skipulagðir hópar tölvuþrjóta sem standa á bak við þær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Í gær

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig