fbpx
Fimmtudagur 25.desember 2025
433Sport

„Við verðum að trúa“

Helga Jónsdóttir
Miðvikudaginn 28. apríl 2021 21:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

PSG tók á móti Manchester City í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld og endaði leikurinn með 1-2 sigri gestanna. Liðin mætast aftur á þriðjudaginn í næstu viku á Etihad og þá kemur í ljós hvort liðið tryggir sér farseðilinn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu en ljóst er að City er í kjörstöðu með tvö útivallarmörk. Pochettino var svekktur með úrslit sinna manna í kvöld:

„Þetta var leikur tveggja hálfleikja, við vorum frábærir í fyrri hálfleik en það er erfitt að halda út gegn liði eins og City. Við áttum skilið að komast yfir en þeir voru miklu betri en við í seinni hálfleik. Bæði mörk þeirra voru slys en þeir sköpuðu fleiri færi en við. Bæði lið áttu einn góðan hálfleik,“ sagði Pochettino við BT sport eftir leik.

„Ég er mjög vonsvikinn með þessi tvö mörk, það er vont að þetta hafi gerst og sérstaklega í undanúrslita leik. Þetta er afar sárt.“

„Það er erfitt að útskýra afhverju þeir voru betri í seinni en við vorum klárlega betri í fyrri hálfleik. Það var erfitt að halda út, þeir eru í frábæru formi og ákafari. Við vorum ekki með þá orku sem þurfti.“

Gueye fékk beint rautt spjald eftir ruddalega tæklingu á Gundogan á 77. mínútu. Þetta hafði Pochettino að segja um atvikið:

„Rauða spjaldið hefði bæði getað verið gult og rautt eftir því hvernig þú metur það.“

„Þeir hafa forskot en í fótbolta verður maður að trúa, seinni leikurinn er enn eftir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum – Blóðheitir og fengu hrokafullt svar frá stórstjörnunni

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum – Blóðheitir og fengu hrokafullt svar frá stórstjörnunni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útlit fyrir að Manchester verði áfangastaður Semenyo

Útlit fyrir að Manchester verði áfangastaður Semenyo
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hætt við leikinn eftir allt saman

Hætt við leikinn eftir allt saman
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hugsanlegur slagur milli Real Madrid og Manchester City næsta sumar

Hugsanlegur slagur milli Real Madrid og Manchester City næsta sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þetta eru leikirnir sex sem Bruno Fernandes missir af

Þetta eru leikirnir sex sem Bruno Fernandes missir af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Amorim ætlar að umturna þessari stöðu næsta sumar

Amorim ætlar að umturna þessari stöðu næsta sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Endrick á leið til Frakklands

Endrick á leið til Frakklands