fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
433Sport

Verða þetta mestu vonbrigðin á Íslandi þetta sumarið?

433
Miðvikudaginn 28. apríl 2021 10:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Efsta deild karla hefst með pomp og prakt á föstudag. Mikil spenna er fyrir Íslandsmótinu enda var það síðasta ekki klárað.

Sparkspekingar eru duglegir að tala deildina upp og leikmenn en sagan segir okkur að alltaf muni einhverjir valda vonbrigðum.

Sparkspekingar 433.is telja að þessir tíu leikmenn gætu ollið miklum vonbrigðum í sumar.

Mynd/Instagram

Arnór Smárason (Valur)

Kominn heimm eftir mjög farsælan feril í atvinnumennsku, hefur ekki fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í vetur og þarf að sanna ágæti sitt hér heima.

Kaj Leo í Bartalsstovu (Valur)

Skorar lítið og leggur fá mörk upp. Spilar samt ótrúlega mikið ár eftir ár.

© 365 ehf / Ernir Eyjólfsson

Björn Daníel Sverrisson (FH)

Hefur verið skugginn af sjálfum sér síðan hann snéri aftur heim.

© 365 ehf / Stefán Karlsson

Jónatan Ingi Jónsson (FH)

Eins og var með Brynjólf Darra Andersen þá er alltaf búist við að hann geri eitthvað. En það gerist aldrei neitt. Búinn að krota undir nýjan samning við FH en hefur mikið að sanna

Emil Atlason (Stjarnan)

Á að leiða framlínu Stjörnunar en hefur mest skorað 5 mörk á einu tímabili, ekki líklegt til árangurs.

Alexander Helgi Sigurðarson (Breiðablik)

Alltaf meiddur og nær aldrei takti, getur hann breytt sögunni og staðið undir væntingum.

Oliver Sigurjónsson (Breiðablik)

Tekur aukaspyrnur fyrir Blika og ætti því að geta verið með einhver mörk í sér en það síðasta kom árið 2018 í deildinni.

Guðjón Baldvinsson (KR)

Hefur frá árinu 2018 aldrei skorað meira en fimm mörk í deildarkeppni, hefur raðað inn í vetur en getur hann skorað þegar það skiptir máli?

Mynd/Heimasíða Leiknis

Manga Escobar (Leiknir)

Sagður dýrasti leikmaður í sögu Leiknis en hefur hann aga og elju til þess að standa sig. Hæfileikarnir til staðar en getur hann sannað ágæti sitt á köldu sumarkvöldi í Breiðholti?

Birnir Snær Ingason (HK)

Í nokkur ár hefur verið beðið eftir því að Birnir Snær slái í gegn, hæfileikaríkur en stöðuleikinn hefur ekki fundist þrátt fyrir ítarlega leit.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Van Dijk vonar innilega að Chiesa verði áfram

Van Dijk vonar innilega að Chiesa verði áfram
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Sammála um að Guardiola hafi logið að öllum í gær

Sammála um að Guardiola hafi logið að öllum í gær
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Enn eitt áfallið fyrir Chelsea

Enn eitt áfallið fyrir Chelsea
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ungur drengur í Bandaríkjunum vekur mikla athygli – Yfirgaf bílinn til að fá áritun frá hetjunni

Ungur drengur í Bandaríkjunum vekur mikla athygli – Yfirgaf bílinn til að fá áritun frá hetjunni
433Sport
Í gær

Daníel Tristan með stórleik og Ísak Snær heldur áfram að skora

Daníel Tristan með stórleik og Ísak Snær heldur áfram að skora
433Sport
Í gær

Ofurtölvan spáir United 12. sæti og Liverpool titlinum

Ofurtölvan spáir United 12. sæti og Liverpool titlinum
433Sport
Í gær

Arteta kannaði málið og allir völdu Ödegaard

Arteta kannaði málið og allir völdu Ödegaard
433Sport
Í gær

Allir í stúkunni stóðu saman og heiðruðu minningu Jota

Allir í stúkunni stóðu saman og heiðruðu minningu Jota