fbpx
Fimmtudagur 10.júlí 2025
433Sport

Segir að það bjargi engu að grenja yfir þessu

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 28. apríl 2021 08:31

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Real Madrid tók á móti Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli liðanna.

Chelsea byrjaði leikinn af krafti og átti Timo Werner dauðafæri sem hann klúðraði strax í byrjun leiks. Pulisic braut ísinn fyrir gestina þegar stundarfjórðungur var liðinn af leiknum með flottu marki eftir sendingu frá Rudiger. Eftir markið héldu gestirnir áfram að sækja en það var Benzema sem jafnaði metin eftir hálftíma leik þvert gegn gangi leiksins. Síðari leikurinn eftir viku fer svo fram á Englandi.

Timo Werner framherji Chelsea fékk dauðafæri í leiknum til þess að skora en hann hefur ekki verið heitur fyrir framan markið. Werner hefur klúðrað dauðafærum reglulega.

„Hann klúðraði svakalegur færi gegn West Ham og aftur hérna í þessum leik, það hjálpar auðvitað ekki,“ sagði Thomas Tuchel þjálfari Chelsea eftir leikinn.

Hann vonar að Werner fari ekki að vorkenna sjálfum sér. „Það hjálpar samt ekkert að grenja yfir þessu eða sjá eftir þessu mjög lengi.“

„Svona er staðan, það eru milljónir manna sem eru í verri stöðu og að eiga við erfiðari mál. Það er öllum sama um þetta á morgun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Íslendingar láta gengið ekki á sig fá – Fjölmenntu þó langt væri í leik

Íslendingar láta gengið ekki á sig fá – Fjölmenntu þó langt væri í leik
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Aftur farnir að eltast við Garnacho

Aftur farnir að eltast við Garnacho
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

United ræður mann í að klára nýjan völl – Vilja halda úrslitaleik HM árið 2035

United ræður mann í að klára nýjan völl – Vilja halda úrslitaleik HM árið 2035
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þarf fleiri sálfræðinga svo stelpurnar geti náð árangri? – „Aug­ljós­asta niðurstaðan í þessu öllu sam­an“

Þarf fleiri sálfræðinga svo stelpurnar geti náð árangri? – „Aug­ljós­asta niðurstaðan í þessu öllu sam­an“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

United gengur frá kaupum á gríðarlega efnilegum leikmanni

United gengur frá kaupum á gríðarlega efnilegum leikmanni
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Keyrði framhjá vettvangi rétt eftir slysið hjá Diogo Jota – Lofar fólki því að þeir keyrðu ekki of hratt

Keyrði framhjá vettvangi rétt eftir slysið hjá Diogo Jota – Lofar fólki því að þeir keyrðu ekki of hratt