fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Liverpool – Manchester City: Byrjunarliðin klár – Mane og Alisson byrja

Aron Guðmundsson
Sunnudaginn 7. febrúar 2021 15:31

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool tekur á móti Manchester City í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Leikið verður á Anfield, heimavelli Liverpool og hefst leikurinn klukkan 16:30.

Liverpool er í 4. sæti deildarinnar með 40 stig fyrir leik dagsins, sjö stigum á eftir toppliði Manchester City sem á einnig leik til góða á Liverpool.

Heimamenn töpuðu í síðustu umferð deildarinnar á heimavelli gegn Brighton og vilja án efa komast aftur á sigurbrautina og minnka bilið í Manchester City.

Liverpool er án nokkurra sterkra leikmanna. Virgil Van Dijk, Joe Gomez, Joel Matip og Diogo Jota eru meðal þeirra sem eru frá vegna meiðsla.

Það eru hins vegar góðar fréttir fyrir liðið að Sadio Mané og Alisson eru báðir orðnir heilir heilsu og eru í byrjunarliðinu.

Byrjunarlið Liverpool:
Alisson, Robertson, Alexander-Arnold, Henderson, Fabinho, Thiago, Wijnaldum, Jones, Salah, Firmino, Mane

Manchester City er á fljúgandi siglingu í deildinni. Síðasti tapleikur liðsins kom gegn Tottenham þann 21. nóvember 2020. Liðið hefur fengið á sig fæst mörkin í deildinni, alls 13 talsins en sóknarleikur liðsins hefur einnig verið góður á tímabilinu þar sem liðið hefur skorað 39 mörk.

Manchester City spilar án Kevin De Brunye, Sergio Aguero og Nahtan Aké sem eru allir frá vegna meiðsla.

Byrjunarlið Manchester City:
Ederson, Cancelo, Dias, Stones, Zinchenko, Gundogan, Rodri, Bernardo, Sterling, Mahrez, Foden

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands
433Sport
Í gær

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd