fbpx
Föstudagur 14.nóvember 2025
Pressan

Hæstiréttur tekur Glitnismál fyrir á nýjan leik – Hagsmunir hæstaréttardómara valda vafa um óhlutdrægni dómstólsins

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 27. október 2020 08:00

Hús Hæstaréttar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Endurupptökunefnd hefur fallist á að mál Magnúsar A. Arngrímssonar, fyrrverandi starfsmanns Glitnis, verði tekið upp á nýjan leik. Hæstiréttur dæmdi Magnús í tveggja ára fangelsi árið 2015 fyrir umboðssvik.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að forsendur endurupptökunnar séu fjárhagslegir hagsmunir Markúsar Sigurbjörnssonar, sem var meðal dómara málsins, en hann tapaði tæpum átta milljónum á falli Glitnis 2008.

Í niðurstöður endurupptökunefndar segir að vegna fjárhagslegs taps Markúsar hafi Magnús haft ástæðu til að draga óhlutdrægni dómstólsins í efa.

Í málinu var Magnúsi og öðrum sakborningum gefið að sök að hafa framið umboðssvik með því að hafa gengið lengra en umboð þeirra til lánveitinga á vegum Glitnis náði með því að heimila lánveitingu til félagsins BK-44. Aðeins einn tölvupóstur tengdi Magnús við málið og var hann svohljóðandi:

„Ég er kominn með samþykki fyrir PM mörkum á BK-44 ehf, kt. 620200- 2120, upp á 4ma. kr. í 6 mánuði.“

Við rannsókn málsins sagði Magnús að hann hafi ekki verið að gefa leyfi fyrir umræddri lánveitingu með tölvupóstinum heldur einungis verið að bera skilaboð á milli um að leyfi hefði verið veitt.

„Það sjónarmið sem býr að baki þessari endurupptöku er einfalt, skjólstæðingur minn er saklaus,“

hefur Fréttablaðið eftir Páli Rúnari M. Kristjánssyni, lögmanni Magnúsar, sem telur einsýnt að dómurinn verði leiðréttur með nýjum dómi og Magnús sýknaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Segja græðgi eigenda hafa valdið því að 25 ungar stúlkur létu lífið í sumarbúðum

Segja græðgi eigenda hafa valdið því að 25 ungar stúlkur létu lífið í sumarbúðum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja að ríkir Vesturlandabúar hafi tekið þátt í hrottalegum morðtúrisma sér til skemmtunar

Telja að ríkir Vesturlandabúar hafi tekið þátt í hrottalegum morðtúrisma sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjurnar“ í Rússlandi

„Svörtu ekkjurnar“ í Rússlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hrottaleg saga ungs pars skekur Texas- „Við leggjum af stað í dögun“

Hrottaleg saga ungs pars skekur Texas- „Við leggjum af stað í dögun“