fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Pressan

Segir að Meghan Markel hafi verið með úthugsaða áætlun og markmið

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 15. október 2020 06:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundurinn Lady Colin Campbell segir að Meghan Markel, hertogaynja, hafi meðvitað búið til mikið drama í kringum sig og eiginmanninn Harry og hafi tekið umdeildar ákvarðanir á grunni úthugsaðrar almannatengslaáætlunar sem átti að tryggja að hún yrði þekktasta manneskja heims.

Page Six skýrir frá þessu. Fram kemur að Campbell hafi sagt þetta í spjallþætti Graham Norton á BBC nýlega. Campbell skrifaði bók um Díönu prinsessu fyrir nokkrum árum.

Í þættinum sagði hún að almannatengslaáætlunin hafi verið gerð af Meghan og að Harry hafi samþykkt hana. Hún sagði að Meghan hafi meðvitað gert hluti, sem ekki „má“ þegar maður tilheyrir konungsfjölskyldunni, til að ná markmiði sínu. Hún sagði að viðskilnaður hjónanna við konungshöllina hafi verið hluti af áætlun Meghan.

„Þetta er meðvituð áætlun. Að vera nógu umdeild því annars verður maður ekki nægilega frægur.“

Campbell skrifaði bókina „Meghan and Harry: The Real Story“ sem kom út í sumar. Í þættinum játaði hún að áætlun Meghan hefði áhrif á hana því hún væri að skrifa bók um Meghan og þar með að taka þátt í áætluninni.

„Ég held að við séum að upplifa svolítið sem mun fara í sögubækurnar og mér er alveg sama um hvort hún verður frægasta manneskja heims eða ekki. Það eina sem skiptir mig máli er hvort hér sé saga sem þarf að segja,“ sagði hún og bætti við að hjónin hafi reynt að hafa áhrif á skrif hennar í gegnum sameiginlega vini.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Faðir skaut son sinn vegna heimsóknarleysis

Faðir skaut son sinn vegna heimsóknarleysis
Pressan
Fyrir 3 dögum

Langseturnar gætu verið að drepa þig

Langseturnar gætu verið að drepa þig
Pressan
Fyrir 5 dögum

Eiginkonan varð veik eftir heimsendan mat – Brá mikið þegar hann sá Ring-upptökuna

Eiginkonan varð veik eftir heimsendan mat – Brá mikið þegar hann sá Ring-upptökuna
Pressan
Fyrir 6 dögum

Móðir og amma handteknar eftir að tveggja ára stúlka rannst ráfandi í skógi

Móðir og amma handteknar eftir að tveggja ára stúlka rannst ráfandi í skógi
Pressan
Fyrir 1 viku

Afhjúpa ógnvekjandi áróðursherferð sem bendlaði Taylor Swift við nasisma

Afhjúpa ógnvekjandi áróðursherferð sem bendlaði Taylor Swift við nasisma
Pressan
Fyrir 1 viku

Ótrúlegt myndband sýnir þegar flugvél lenti á bíl á hraðbraut

Ótrúlegt myndband sýnir þegar flugvél lenti á bíl á hraðbraut
Pressan
Fyrir 1 viku

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf
Pressan
Fyrir 1 viku

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum