Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði mark Le Havre í 1-1 jafntefli liðsins við Paris FC í efstu deild í Frakklandi.
Berglind og Anna Björk Kristjánsdóttir voru báðar í byrjunarliði Le Havre.
Berglind kom Le Havre yfir á 87. mínútu en Clara Mateo náði að jafna leikinn fyrir Paris FC á 89. mínútu.
Le Havre er eftir leikinn í 6. sæti deildarinnar með 4 stig eftir þrjár umferðir.
Match terminé entre le @PFC_feminines et le HAC sur un score nul 1-1, le HAC a marqué à la 88ème par Berglind Thorvaldsdottir avant de se faire rejoindre une minutes plus tard. Dommage.#PFCHAC pic.twitter.com/KC8R76sxdg
— HAC Féminines (@hacfem) September 26, 2020