fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Pressan

Sakamál: Lögreglustjórinn sem rannsakaði eigin sakamál – Ótrúlegt glæpaæði eftir fangelsisflótta

Jón Þór Stefánsson
Laugardaginn 19. september 2020 21:30

Samsett mynd - Andre Stander

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Afbrotaferli hins suður-afríska lögreglustjóra Andre Stander hefur verið lýst sem „goðsagnakenndum“. Stander framdi bankarán og var jafnvel fyrstur á vettvang.

Andre Stander fæddist í Suður-Afríku á fimmta áratug síðustu aldar. Stander þótti ágætis námsmaður framan af, en féll þó á stúdentsprófinu sem kom foreldrum hans mikið á óvart. Í stað þess að taka allt árið aftur fór hann í lögregluskólann. Faðir hans var yfirmaður í lögreglunni og setti mikla pressu á að sonurinn skyldi feta í fótspor sín. Á fyrsta ári sínu í lögregluskólanum var hann valinn „besti nýliðinn“ og nokkrum árum seinna var hann sjálfur orðinn yfirmaður í rannsóknardeild lögreglunnar í Jóhannesarborg, einungis 31 árs gamall. Það var einmitt þá, árið 1977, sem hann fór að gera óvenjulega hluti.

Fyrstur á vettvang að rannsaka eigin rán

Talað er um að Stander hafi framið fyrstu ránin sín þegar hann var í fríi. Þá hafi hann keypt flug til borgarinnar Durban snemma um morgun, þar á hann að hafa komið sér í dulargervi, rænt bíl og síðan keyrt á áfangastað, sem yfirleitt var banki. Þar hafi hann framið vopnað rán með byssu sem hann otaði að bankastarfsfólki. Þegar hann fékk svo peningana keyrði hann aftur upp á flugvöll, eins og ekkert hefði í skorist.

Ránin urðu fleiri og fleiri. Í matarpásum átti hann það til að skreppa og ræna banka og mæta aftur á vakt. Hann var jafnvel fyrsti rannsóknarlögreglumaðurinn á vettvang eigin glæps. Stander yfirheyrði jafnvel vitni, sem ótrúlegt en satt, könnuðust ekki við hann. Svo virðist vera að hann hafi fengið mikið út úr því að ræna.

Átti erfitt með að halda hlátrinum niðri

Stander sagði vini sínum, sem starfaði einnig hjá lögreglunni, frá ránunum. „Hann viðurkenndi þetta fyrir mér. Fyrst fannst honum þetta óþægilegt, en svo gat hann hreinlega ekki stoppað. Hann gat ekki hamið sig, horfði á andlit fórnarlamba sinna og átti erfitt með að halda hlátrinum niðri. Það var einhver sadískur eineltis-kjarni í þessu.“ Vinur hans gerði lögreglu viðvart sem handtók Stander, eftir að hún lagði hald á stolinn bíl með dulargervunum sem hann notaði.

Stander var árið 1980 ákærður fyrir að fremja 28 rán. Hann var dæmdur sekur í 15 ákæruliðum og fékk 75 ára fangelsisdóm. Hann á að hafa rænt að minnsta kosti 100.000 suður-afrísk rönd, sem í dag yrði metið á tugi milljóna íslenskra króna „Ég neyddi hann til að fara í lögregluna gegn hans eigin óskum. Hann hefði átt að hætta þar fyrir mörgum árum.“ sagði faðir Standers eftir réttarhöldin.

Slapp úr fangelsi

Í öryggisfangelsinu Zonderwater kynntist Stander, Patrick McCall og Allan Heyl, en báðir voru bankaræningjar. Árið 1983 tókst þeim Stander og McCall að flýja fangelsisvistina. Þeir lugu um veikindi og fengu tíma hjá sálfræðingi sem starfaði utan fangelsisins. Þeim tókst að yfirbuga þrjá fangaverði sem áttu að fylgjast með þeim og stela bíl sálfræðingsins til að komast á brott.

Í tvo mánuði létu þeir lítið fyrir sér fara, eða þangað til þeir brutust inn í sérstakan endurmenntunarskóla fyrir fanga. Þar var Allan Heyl að taka próf, en hann fór á brott ásamt Stander og McCall.

Nokkur rán á dag í sögulegu ránsæði

Strax í kjölfarið tók við ótrúlegt ránsæði þeirra um Jóhannesarborg, en vegna þess hlutu þeir nafnið Stander-gengið í fjölmiðlum. Eitt fyrsta ránið var í vopnabúð, þar sem þeir byrgðu sig upp af vopnum sem þeir notuðu svo í hin ránin. Tríóið rændi fyrst og fremst banka og það í stórum stíl. Ránin voru framin á skömmum tíma og þar af leiðandi frömdu þeir stundum nokkur á dag, þegar mest gekk á voru þau fjögur á einum og sama deginum.

Stander genginu tókst alltaf að vera nokkrum skrefum á undan lögreglunni, til að mynda notuðust þeir við þrennt húsnæði á mismunandi stöðum í borginni. Talið er að heildarþýfi þeirra hafi verið metið á um það bil 700.000 rönd, sem í dag væru hátt í 200 milljónir króna.

Bílaþjófnaður varð Stander að falli

Í byrjun árs 1984, þegar ránsæðið hafði staðið yfir í meira en tvo mánuði, fóru þremenningarnir að átta sig á því að tíminn færi að verða naumur. Lögreglan virtist alltaf vera nær því að góma þá og því fóru þeir að huga að því að koma sér í burtu. Á endanum voru það fylgdarkonur sem gerðu lögreglunni viðvart um eitt húsnæði þeirra.

Þá voru Stander og Heyl búnir að koma sér úr landi, en McCall var eftir. Lögregla umkringdi húsnæðið, en McCall ákvað að heyja skotbardaga við hana, frekar en að gefast upp. Það endaði með dauða hans. Heyl flúði til Evrópu þar sem hann flakkaði á milli staða, en var á endanum handtekinn í Bretlandi. Hann sat í fangelsi til ársins 2005, en lést í apríl á þessu ári.

Stander flúði aftur á móti til Flórída-fylkis. Hann var tekinn af lögreglunni á óskráðum Ford Mustang. Honum tókst að sannfæra lögregluna um að hann væri ástralskur rithöfundur, en missti bílinn. Stander tók það ekki í mál og stal bílnum aftur af lögreglustöðinni. Í kjölfarið komst lögreglan að því að þarna væri eftirsóttasti maður Suður-Afríku á ferð. Þegar átti að handtaka Stander reyndi hann að flýja, sem varð til þess að lögregluþjónn skaut á hann með þeim afleiðingum að hann lést.

Einfaldur og sorglegur endir á ótrúlegum glæpaferli eins afkastamesta þjófs heims.

Þessi grein birtist í tölublaði DV þann 11. september.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Keypti sjö líftryggingar fyrir eiginkonuna og svo dó hún á dularfullan hátt

Keypti sjö líftryggingar fyrir eiginkonuna og svo dó hún á dularfullan hátt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfullur hlutur hrapað úr geimnum og lenti á húsi í Flórída

Dularfullur hlutur hrapað úr geimnum og lenti á húsi í Flórída
Pressan
Fyrir 4 dögum

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 5 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra