fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Stór dagur hjá Helga Björns – fyrst fálkaorða og síðan borgarlistamaður

Erla Hlynsdóttir
Miðvikudaginn 17. júní 2020 14:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri útnefndi í dag Helga Björnsson borgarlistamann Reykjavíkur 2020 við hátíðlega athöfn í Höfða.

Útnefningin  er heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi og samfélagi.

Þetta er afar góður dagur fyrir Helga því stuttu áður fékk hann riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum, einn fjórtán sem hana hlutu í dag.

Taktu Helga Björns-prófið!

Til gamans fylgir hér tengill á prófið Hversu vel þekkir þú Helga Björns? sem DV birti sumarið 2018. Við vekjum sérstaka athygli á því að ekki er lengur hægt að vinna neina miða með því að taka prófið.

Þeir sem treysta sér ekki til að taka prófið geta hér lesið um feril Helga. Útttektin er unnin af Reykjavíkurborg í tilefni af útnefningu hans sem borgarlistamanns.

Helgi Björnsson –  ævi- og listamannsferill

Helgi Björnsson er fæddur á Ísafirði 10. júlí árið 1958.  Foreldrar hans eru þau María Gísladóttir fyrrverandi leikskólakennari og Björn Helgason fyrrverandi málarameistari, skíðakappi og landsliðsmaður í fótbolta. Eiginkona Helga er Vilborg Halldórsdóttir leikkona, leikari, leiðsögumaður og textahöfundur með meiru.

Helgi hefur sjálfur sagt að hann var farinn bæði að leika og syngja sem strákur og ákvað 10 ára að hann ætlaði að verða poppstjarna þegar hann yrði stór.

Hann komst inn í leiklistarskólann haustið 1979 og útskrifaðist þaðan vorið 1983 ásamt Vilborgu og fleiri landsþekktum leikurum.

Við útskrift úr Leiklistarskólanum fékk Helgi tvö vinnutilboð: að syngja með hljómsveitinni Grafík og að taka að sér hlutverk Arngríms Árland í kvikmyndinni Atómstöðin.  Hann tók báðum tilboðum og þannig hófst hans tvískipti ferill, en allt frá þessu fyrsta sumri hefur hann jöfnum höndum sungið og leikið.

Þó svo að Helgi hafi æ síðan sinnt þessum tveimur „músum“ sínum jöfnum höndum, þá er það sennilega rokkarinn Helgi Björns sem flestir bera sterkar taugar til. Flestir Íslendingar geta raulað með lögum sem hann hefur sungið inn í meðvitund okkar með Grafík, SSSól eða Reiðmönnum vindanna hin síðari ár.  Helgi Björnsson er  rokkari sinnar kynslóðar, ekki síst vegna öflugrar og litríkrar sviðsframkomu – og svo vegna frasans sem eilíflega verður kenndur við hann: „Eru ekki allir sexý!“

Helgi Björns vann sig svo enn og aftur inn í hjörtu allra landsmanna með Heima-tónleikunum sjö sem sýndir voru beint í sjónvarpi Símans á meðan samkomubannið vegna Covid-19 stóð yfir . Hugmyndina fékk hann þegar hann fylgdist með vinum sínum á Ítalíu sem sungu á svölum og streymdu örtónleikum úr stofunum sínum í útgöngubanni. Öllum viðburðum sem Helgi Björns hefði átt að taka þátt í hafði verið frestað og því fannst honum upplagt að gera eitthvað á þessa leið – búa til tónleika, nokkurs konar sveitaballsstemningu heima í stofu og senda í stofur allra landsmanna, þjóðinni til ómældrar skemmtunar og gleði.

Plötuútgáfa

Grafík: Get ég tekið cjéns (1984)
Grafík: Stansað, dansað öskrað (1985)
Síðan skein sól: Síðan skein sól (1988
Síðan skein sól: Ég stend á skýi (1989)
Síðan skein sól: Halló, ég elska þig (1990)
Rafn Jónsson: Andartak (1991)
SSSól: SSSól (1993)
Rocky Horror (1995)
Helgi Björnsson: Helgi Björns (1997)
Meiri gauragangur (1998)
Carmen Negra (1998)
SSSól: 88/99 (1999)
Rafn og Rúnar: Í álögum (2000)
Helgi Björnsson og Berþór Pálsson: Strákarnir á Borginni (2000)
Helgi Björnsson: Yfir Esjuna (2005)
Helgi Björns og Reiðmenn vindanna: Ríðum sem fjandinn (2008)
Helgi Björnsson og Kokteilpinnar: Kampavín (2009)
Helgi Björns og Reiðmenn vindanna: Þú komst í hlaðið (2010)
Helgi Björns og Reiðmenn vindanna: Ég vil fara upp í sveit (2011)
Helgi Björns syngur íslenskar dægurperlur
Grafík: 1981-2011 (2011)
Helgi Björns og Reiðmenn vindanna: Heim í heiðardalinn (2012)
Helgi syngur Hauk ásamt The Capital Dance Orchestra (2013)
Helgi Björnsson: Eru ekki allir sexý? (2014)
Helgi Björnsson: Veröldin er ný (2015)

 

Sviðsverk:

1983  La Traviata,

1984  Tilbrigði við Önd, Láttu ekki deigan síga, Jakob og meistarinn

1985 Kötturinn, Land míns föður

1986 Djöflaeyjan

1987 Síldin kemur, síldin fer, Hremming

1988 Maraþondasinn

1989 Ljós Heimsins

1990 Ljón á Síðbuxum

1991 Kysstu mig Kata

1992 Ofviðrið

1995 Rocky Horror

1998 Carmen Negra, Meiri gauragangur

1999  Rent

2012 Axlar-Björn

2016 Mamma Mia

Sjónvarp/kvikmyndir:

1984  Atómstöðin

1985 Skytturnar, Fálkaslóð

1986  Foxtrott, Í skugga Hrafnsins, Nonni og Manni

1990 Veggfóður

1991 Sódóma Reykavík

1993 Stuttur Frakki

1994 Laggó

1998 Óskabörn Þjóðarinnar

2000 Bjallan

2001 No such thing

2004 Njálssaga

2005 Strákarnir okkar

2006 Köld slóð

2006 Beulfs story

2008 Svartir Englar

2009 Reykjavík Whale Whatching Massacre

2011 Pressan, Hitler´s Grave, Makalaus

2013 Frost, Hross í oss

2014 Vonarstræti, París norðursins

2016  Ligeglad, Islands-Krimi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“