fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Lesið í tarot Guðna Th. – Nú er tíminn fyrir skræpóttu sokkana

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 20. apríl 2020 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er jákvæður að eðlisfari en það hefur reynt á Pollýönnu-taktana upp á síðkastið. Lúna Fírenza, spákona og tarotmeistari DV, lagði spilin á borðið fyrir forsetann.

Guðni er Krabbi og það jákvæða við Krabba er að þeir eru mjög tryggir, gáfaðir og með mikla réttlætis- og samkennd. Krabbinn hefur ríka félagsgreind sem er klárlega mikill kostur fyrir forseta. Krabbinn á það líka til að vera tilfinningavera og líður yfirleitt best þegar öðrum líður vel. Hann vill alls ekki bregðast fólki þannig að þessir tímar reyna verulega á.

Átta í sverðum

Lykilorð: Ótti, kvíði, varnarleysi

Þetta spil er lýsandi fyrir þá tilfinningu sem flest okkar hafa upplifað á þessum tímamótum. Eins jákvæður og þú átt það til að vera þá hefur þú fundið fyrir bæði kvíða og ótta undanfarið. Þú nýtur þín ekki þegar þú finnur fyrir óöryggi hjá öðrum. Þú vilt geta sagt fólkinu þínu að það sé allt á uppleið og bjart fram undan. Að allt verði í lagi. Þér finnst eins og völdin hafi vera tekin af þér. En það er ekkert að óttast, því þetta er bara staðfesting á tilfinningu sem hefur komið upp hjá þér, ekki það sem komið er til að vera. Mundu bara að það
er allt í lagi að segja: Hei, mér líður ekki sérlega vel í dag. Jafnvel þótt maður sé forseti!

10 stafir

Lykilorð: Erfiðisvinna, ábyrgð, byrði

Tíu stafir eru til vitnis um að það er aukin ábyrgð á herðum þér, þyngri byrði en venjulega í starfi þínu. Þó að þú finnir fyrir þessum þyngslum þá hefur þú fullan skilning á því að þetta er tímabundið. Þú finnur fyrir nýjum krafti í þessari viku til að takast á við þetta krefjandi verkefni sem er fram undan. Spilin lofa þér að þú verður verðlaunaður fyrir erfiðisvinnuna og innsæi þitt veit það líka og þess vegna finnur þú fyrir nýjum krafti. Þú veist að þessi átök munu skilja eftir sig eitthvað einstakt og fallegt.

Myntgosi

Lykilorð: Nýir tímar, öryggi, stöðugleiki, gnægð

Jæja, nú kemur allt heim og saman með þessu fallega og góða spili. Þú uppskerð eins og þú sáir, ert sannur leiðtogi og munt með þínu teymi koma þjóðfélaginu á bjartari braut mun fyrr en útlit var fyrir. Saman stöndum við sterk. Það er nýr kraftur sem fyllir samfélagið af stöðugleika og fjármál verða jafnvel betri en þau voru áður. Fólkið í samfélaginu mun styðja hvert annað og lítil fyrirtæki fá að blómstra á ný. Þetta fyllir Krabbahjartað mikilli hugarró.

Skilaboð frá spákonunni:

„Ef það er einhvern tímann rétti tíminn til að draga fram skræpóttu sokkana, þá er það núna. Það eru litlu hlutirnir sem skipta máli og bara það eitt að bæta aðeins í lita dýrðina í kringum sig, hvort sem það er í formi sokka eða jafnvel blóma, skiptir máli og því mæli ég með að þú bætir við litum í líf þitt.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.