fbpx
Föstudagur 03.maí 2024

Lesið í tarot Stjörnu-Sævars: Fréttirnar sem öllu breyta

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 12. janúar 2020 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, hefur barist ötullega fyrir bættri vitund landsmanna um loftslagsvána, en smá bakslag kom í baráttuna um helgina þegar að hann var sakaður um að birta villandi tölfræði um kjötát. DV ákvað því að lesa í tarotspil Stjörnu-Sævars og athuga hvað framtíðin ber í skauti sér. Lesendum DV er bent á að þeir geta sjálfir dregið spil á dv.is.

Breytingar í einkalífinu

Fyrsta spilið sem kemur upp er Stafagosi. Það táknar persónu sem stendur Sævari nærri. Hér er á ferðinni lífleg manneskja sem færir honum skemmtilegar stundir og ekki síður spennu. Persónan sem um ræðir er mjög glaðleg og nýtur þess að spjalla. Hugsanlega er þetta maki, en þessi manneskja mun færa Sævari góðar fréttir innan tíðar. Þessar fréttir gætu þýtt miklar breytingar í lífi Sævars og ný tækifæri gætu skapast. Þá er Sævar nýbyrjaður á verkefni sem á eftir að takast virkilega vel og fyllist hann orku og metnaði við vinnslu þess.

Veigamikil viðurkenning

Næst er það Stjarnan. Það umlykur Sævar mikill friður og vellíðan. Hann hefur fullkomna stjórn á tilveru sinni og kann upp á tíu þá list að miðla málum. Hann er að ganga inn í mjög jákvætt tímabil sem einkennist af velgengni. Hann á að hafa arminn opinn fyrir tækifærum og mun hann senn fá veigamikla viðurkenningu, eitthvað sem hann hefur dreymt um.

Virkjar draumana

Þá er það Töframaðurinn. Sævar sækir andlegan og líkamlegan mátt ómeðvitað til æðri máttarvalda og á sama tíma úr umhverfi sínu. Sjálfsöryggi, skipulag og agi einkennir hann og mun hann virkja drauma sína innan tíðar. Það eru ekki síst vitsmunir hans og hæfileikar í mannlegum samskiptum sem munu koma honum á áfangastað. Sævari er ráðlagt að nota alla sína góðu kosti til að koma hugsunum sínum í verk sem fyrst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Rashford boðaður á krísufund hjá Manchester United

Rashford boðaður á krísufund hjá Manchester United
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Skipstjórinn dæmdur í fjögurra ára fangelsi eftir harmleikinn

Skipstjórinn dæmdur í fjögurra ára fangelsi eftir harmleikinn
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn fjórum kærustum sínum – Ein man bragðið af byssuhlaupinu

Dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn fjórum kærustum sínum – Ein man bragðið af byssuhlaupinu
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Bankabækur Dana tútna út

Bankabækur Dana tútna út
433
Fyrir 13 klukkutímum

Besta deild kvenna: Nýliðarnir með sterkan sigur

Besta deild kvenna: Nýliðarnir með sterkan sigur
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Hin raunverulega Martha úr Baby Reindeer hótar Stephen King

Hin raunverulega Martha úr Baby Reindeer hótar Stephen King
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sjáðu hjartnæmt myndband – Klopp táraðist er unga listakonan afhenti honum málverkið

Sjáðu hjartnæmt myndband – Klopp táraðist er unga listakonan afhenti honum málverkið
433
Fyrir 15 klukkutímum

Besta deild kvenna: Valur með stórsigur á Víkingi – Nadía fagnaði vel gegn sínu gamla liði

Besta deild kvenna: Valur með stórsigur á Víkingi – Nadía fagnaði vel gegn sínu gamla liði

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.