fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025

Móðir Magnúsar þakkaði kennaranum í jarðarför hans: „Þetta skipti hann máli“

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 8. nóvember 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag 8. nóvember er hinn árlegi Dagur gegn einelti og kynferðisofbeldi í öllum aldurshópum. Í tilefni dagsins er tilvalið að rifja upp þessa vinsælu dæmisögu sem hefur gengið manna á milli undanfarin ár. Sagan vekur meiri athygli á dögum eins og þessum og hafa margir deilt henni á samfélagsmiðlum í dag.

Boðskapur sögunnar er einfaldur en mikilvægur um leið:

Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað.

Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli.

Síðan bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það fyrir neðan nafnið.

Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.

Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir.

Þegar þeir lásu þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.

Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu máli.

Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.

Lífið hélt áfram.

Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað að vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn hafði fengið honum fyrir mörgum árum.

„Þakka þér fyrir að gera þetta, því eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli,“ sagði móðir Magnúsar.

Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af því sem þeim þótti vænst um.

Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með þessu uppátæki.

Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að lífið endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður.

Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu þér mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en það verður of seint.

Gerðu eitthvað gott fyrir þá sem eru þér mikilvægir.

Sýndu að þér er annt um vini þína. Mundu að þú uppskerð eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum. Vona að dagurinn verði þér finn og sérstakur því þú skiptir miklu máli!

Langvarandi áhrif eineltis

Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins, skrifar pistill í Fréttablaðinu í dag um aðgerðir gegn einelti meðal barna.

„Það er átakanlegt að heyra barn lýsa hvernig því hefur verið strítt, það elt og hrellt, í það sparkað eða slegið, að því hæðst, það hrætt og hunsað. Því lengur sem einelti varir og því grófara sem það er, því meiri er skaðsemin. Afleiðingar vara oft alla ævi, brotin sjálfsmynd og félagslegt óöryggi. Einelti hefur alvarlegar afleiðingar bæði fyrir þolendur en einnig fyrir gerendur. Minningin um að hafa verið lagður í einelti lifir og minningar um að hafa lagt í einelti eru ekki síður þrautseigar,“ skrifar Kolbrún. Hún segir að einelti megi ekki ná fótfestu.

„Einelti meðal barna má ekki ná fótfestu, hvað þá að þrífast. Byrja þarf á grunninum og það er að útskýra fyrir börnum um leið og þroski leyfir á orðbundin, táknrænan og myndrænan hátt hvaða hegðun er ekki liðin. Sú hegðun sem er ekki liðin er að hóta, meiða: berja, klípa, slá, hrinda, hrækja á, eða sýna dónaskap og/eða útiloka.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Bæjarfulltrúi segir líklega best að kljúfa Reykjanesbæ – Mikil óánægja vegna þrákelkni félags í eigu ríkisins

Bæjarfulltrúi segir líklega best að kljúfa Reykjanesbæ – Mikil óánægja vegna þrákelkni félags í eigu ríkisins
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Kennsl borin á rotnandi lík í yfirgefinni Teslu söngvarans – Ferilinn hefur borið hnekki

Kennsl borin á rotnandi lík í yfirgefinni Teslu söngvarans – Ferilinn hefur borið hnekki
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fyrrum þjálfari hjá United með ráð – Segir þetta augljósa kostinn verði Amorim rekinn

Fyrrum þjálfari hjá United með ráð – Segir þetta augljósa kostinn verði Amorim rekinn
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Ólýsanlegur harmleikur rústaði lífi tveggja fjölskyldna eftir að lögreglan fór mannavillt – „Mamma, ég elska þig en ég get þetta ekki“

Ólýsanlegur harmleikur rústaði lífi tveggja fjölskyldna eftir að lögreglan fór mannavillt – „Mamma, ég elska þig en ég get þetta ekki“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

KR ræður John Andrews til starfa – Gert frábæra hluti hér á landi

KR ræður John Andrews til starfa – Gert frábæra hluti hér á landi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Njarðvík leiðir eftir fyrri leikinn – Diouck skoraði og sá rautt

Njarðvík leiðir eftir fyrri leikinn – Diouck skoraði og sá rautt
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Chelsea nýtir sér nýja reglu sem UEFA setti í síðustu viku

Chelsea nýtir sér nýja reglu sem UEFA setti í síðustu viku
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Framkvæmdastjóri N1: Pítsufyrirtækið var besti skólinn

Framkvæmdastjóri N1: Pítsufyrirtækið var besti skólinn