fbpx
Laugardagur 04.maí 2024
Pressan

Segja mikinn matarskort yfirvofandi í Norður-Kóreu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 24. september 2019 07:55

Frá Norður-Kóreu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sameinuðu þjóðirnar segja að mikill matarskortur sé yfirvofandi í Norður-Kóreu vegna uppskerubrests. Reiknað er með að uppskeran verði sú minnsta í fimm ár. Það hefur í för með sér að 40% íbúa landsins munu búa við alvarlegan matarskort. Uppskerubresturinn kemur ofan í þungar refsiaðgerðir sem landið sætir vegna kjarnorkuvopnabrölts þess.

Samkvæmt nýrri skýrslu SÞ þarf ein milljón manna bráða mataraðstoð vegna uppskerubrestsins. Norður-Kórea hefur lengi glímt við matarskort og skömmtunarkerfi ríkisins virkar ekki eins og skyldi. Ríkisfjölmiðlar landsins, sem eru einu fjölmiðlar þess, hafa um langa hríð varað íbúana við yfirvofandi matarskorti vegna þurrka.

Auk þurrka hefur afríska svínapestin herjað á svínastofninn í landinu og er það ekki til að bæta ástandið.

Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa heitið að gefa nágrönnum sínum í norðri 50.000 tonn af hrísgrjónum í gegnum matarhjálp SÞ. Það hefur þó dregist að koma grjónunum til skila vegna harðra viðbragða norður-kóreskra stjórnvalda við heræfingum Bandaríkjanna og Suður-Kóreu og kyrrstöðunnar í kjarnorkuafvopnunarviðræðunum við Bandaríkin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Nú er komið að því – Einn stærsti fjársjóður Dana verður boðinn upp

Nú er komið að því – Einn stærsti fjársjóður Dana verður boðinn upp
Pressan
Fyrir 2 dögum

Skar höndina af móður sinni til að hann gæti notað fingur hennar til að taka pening út af bankareikningi hennar

Skar höndina af móður sinni til að hann gæti notað fingur hennar til að taka pening út af bankareikningi hennar
Pressan
Fyrir 5 dögum

Gullúr ríkasta farþegans um borð í Titanic seldist fyrir 210 milljónir

Gullúr ríkasta farþegans um borð í Titanic seldist fyrir 210 milljónir
Pressan
Fyrir 5 dögum

Klikkuð samsæriskenning um Joe Biden á miklu flugi

Klikkuð samsæriskenning um Joe Biden á miklu flugi