fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Þórarinn Ingi: „Ótrúlegt að verslunin hafi verið tilbúin að taka þátt í slíkri tilraunastarfsemi í skiptum fyrir fleiri krónur í kassann“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 20. júní 2019 15:10

Þórarinn Ingi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórarinn Ingi Péturssonþingmaður Framsóknarflokksins, segir að með samþykkt breytinga á lögum um dýrasjúkdóma o.fl. og þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna á Alþingi í gær, sé Ísland fyrsta landið í heiminum sem setur á hreint og klárt bann við dreifingu matvæla sem sýkt eru af salmonellu og kampýlóbakter og sem innihalda ákveðnar tegundir sýklalyfjaónæmra baktería:

„Vinna okkar Framsóknarmanna í meðferð málsins á Alþingi hefur skilað sér í gríðarlegum breytingum frá fyrstu drögum málsins. Þeir sem hafa enn efasemdir um málið hafa ekki kynnt sér það til hlítar. Í húfi er verndun búfjárstofna, varnir gegn dýrasjúkdómum og matvælaöryggi,“

segir Þórarinn í tilkynningu og bætir við að bændur þurfi ekki að óttast samkeppni erlendis frá:

„Ísland er núna í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og íslenskir bændur óttast ekki samkeppni erlendis frá, þar sem hún er á jafnréttisgrunni, það er lykilatriði og allt tal um eitthvert annað er bara rangt.“

Komið í veg fyrir hættulega tilraun

Þórarinn segir að bannið sé gert á grundvelli lýðheilsusjónarmiða og gagnrýnir þá sem standa að innflutningi á hráu kjöti hingað til lands um hættulega tilraunastarfssemi á forsendum græðginnar:

„Ef þessi mikilvægustu skref Alþingis hefðu ekki verið stigin værum við búin að opna á innflutning á hráu kjöti, eins og heildsalar og ákveðin stjórnmálaöfl þeim hliðholl, hafa krafist. Íslensk stjórnvöld væru þá einfaldlega að gera tilraun sem allar líkur eru á að endi með ósköpum. Bæði varðandi sýkingar í matvælum og sýklalyfjaónæmi sem virtar alþjóðlegar stofnanir og vísindamenn telja að muni draga fleiri jarðarbúa til dauða árið 2050 en ógnvaldurinn krabbamein. Tilraunastarfsemi af því tagi gerist ekki á vakt okkar Framsóknarmanna. Og ótrúlegt að verslunin hafi verið tilbúin að taka þátt í slíkri tilraunastarfsemi í skiptum fyrir fleiri krónur í kassann,“

segir Þórarinn Ingi.

Í fjármálaáætlun hefur Alþingi tryggt fjárveitingu til aukinna matvælarannsókna og eftirlits, nýsköpunar og framþróunar og til áhættumatsnefndar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir