

,,Núna get ég ekki rætt framtíð mína,“ sagði Mohamed Salah, sóknarmaður Liverpool eftir að liðið vann Meistaradeildina á laugardag.
Orð sem sumir reyna að lesa of mikið í, Salah var þarna ný búinn að vinna sinn stærsta titil á ferlinum. Líklega ekki tímapunkturinn til að ræða neitt annað.
AS á Spáni segir í dag að Real Madrid, FC Bayern og Manchester United hafi áhuga á Salah. Flestir átta sig ekki á því hvar sagan um Manchester United kemur. Enda ljóst að Liverpool, myndi aldrei selja Salah yfir til nágranna sinna.
Vitað er að Real Madrid hefur áhuga, félagið skoðaði það að kaupa hann fyrir ári. Þá vildi Liverpool fá 180 milljónir punda, ljóst er að sá verðmiði hefur bara hækkað.
