fbpx
Þriðjudagur 05.ágúst 2025
Pressan

Fóru upp á loft til að laga leka – Græddu milljarða á því – Þjófarnir naga sig í handarbökin

Pressan
Föstudaginn 15. febrúar 2019 18:30

Mynd er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var svo sannarlega ferð til fjár þegar hjón, sem búa í Toulouse í Frakklandi, fóru upp á háaloft 2014 til að laga þakið en það lak. Uppi á lofti hnutu þau um málverk sem þeim fannst athyglisvert enda var það greinilega mjög gamalt. Þau settu sig í samband við listaverkasala sem hafði áður selt fornmuni fyrir þau. Þá fór málið að vinda heldur betur upp á sig.

Málverkið reyndist vera frá 1607 og eftir hinn heimsþekkta málara Carvaggio. Málverkið var selt sumarið 2019 fyrir sem svarar til um 20 milljarða að því að talið er en uppboðshúsið hefur ekki viljað skýra frá söluverðinu eða hver kaupandinn var. Gengið var frá sölunni tveimur dögum áður en bjóða átti málverkið upp.

The Guardian segir að leiðin að uppboðinu hafi verið löng og á köflum ströng. Ekki voru allir sannfærðir um að verkið væri eftir Carvaggio og heitar umræður fóru fram meðal sérfræðinga um þetta. En á endanum var staðfest að verkið sé eftir Carvaggio. Þegar sú niðurstaða lá fyrir 2016 lögðu frönsk yfirvöld blátt bann við að málverkið yrði flutt úr landi þar sem hér væri um einstök menningarverðmæti að ræða.

Louvre-safninu var boðið að skoða málverkið og kaupa það en safnið hafnaði boðinu því það hefði kostað það um 100 milljónir evra að kaupa málverkið en það eru þær fjárveitingar sem safnið hefur til listaverkakaupa á ári hverju.

En hætt er við að einhversstaðar í Frakklandi sitji nú þjófagengi og nagi sig í handarbökin. Fyrir nokkrum árum var brotist inn hjá hjónunum og þjófar létu greipar sópa um háaloftið. Þar tóku þeir meðal annars gamlar ilmvatnsflöskur en málverkið létu þeir alveg eiga sig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Er þetta nýjasta Airbnb-svindlið? – Grunsamlegar myndir sendar með bótakröfu

Er þetta nýjasta Airbnb-svindlið? – Grunsamlegar myndir sendar með bótakröfu
Pressan
Í gær

Móðir ráðvillt þegar tveggja ára sonur kvartar yfir sónarmynd – „Of hátt“

Móðir ráðvillt þegar tveggja ára sonur kvartar yfir sónarmynd – „Of hátt“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja að auðæfi skorti ekki í Afríku en það sé hins vegar eitt stórt vandamál

Segja að auðæfi skorti ekki í Afríku en það sé hins vegar eitt stórt vandamál
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkin íhuga að vara við ferðum til Kína vegna útbreiðslu banvænnar veiru

Bandaríkin íhuga að vara við ferðum til Kína vegna útbreiðslu banvænnar veiru
Pressan
Fyrir 4 dögum

Harmleikur í Leeds: Kona grunuð um morð á þriggja ára barni

Harmleikur í Leeds: Kona grunuð um morð á þriggja ára barni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Talsmaður Hvíta hússins blandar sér í auglýsingadramað – „Þeir eru komnir með nóg af þessu rugli“

Talsmaður Hvíta hússins blandar sér í auglýsingadramað – „Þeir eru komnir með nóg af þessu rugli“