

„Síðustu daga hefur Umhverfisstofnun staðið fyrir sýnasöfnun á mælistöðinni á Grensás. Sláandi munur er á filternum sem var safnað á um áramótin. Lengst til vinstri er ónotaður filter, sá í miðjunni er dagurinn fyrir áramótin og lengst til hægri er áramótafilterinn. Mynd segir meira en mörg orð. Þetta er það sem við öndum að okkur um áramótin.“
Þetta segir í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.
Mun minni mengun mældist á gamlárskvöld í ár heldur en í fyrra samkvæmt mælingum. Sá litli vindur sem blés nægði til að hreinsa loftið á skemmri tíma en í fyrra, þegar met mengum mældist.
Mest var mengunin í ár í Dalsmára í Kópavogi, fór hæst í 1.600 míkrógrömm á rúmmetra, en í fyrra mældist það 4.600 míkrógrömm á rúmmetra á sama stað.
Mikill munur er á menguninni eftir dögum.