fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Pressan

Dularfullt hljóð truflaði kennarana dag og nótt – Áttu ekki orð þegar þeir fundu upptök þess

Pressan
Sunnudaginn 8. júní 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dularfullt og frekar hávært hljóð var eitthvað sem gat ekki farið framhjá kennurum og öðru starfsfólki sem og nemendum skóla í Hunan-héraðinu í suðausturhluta Kína. Hljóðið heyrðist dag og nótt en erfitt reyndist að staðsetja það. Þegar að rafmagnsreikningur barst og kennarar sáu hversu hár hann var töldu þeir líklegt að það tengdist hljóðinu dularfulla. Þeir báru málið undir skólastjórann sem var sammála því að reikningurinn væri hár en sagði að það væri örugglega vegna mikillar notkunar á loftkælingu og hitadælum. En skólastjórinn vissi betur.

South China Morning Post skýrði frá þessu.

Ekki minnkuðu áhyggjur og grunsemdir kennaranna og annarra vegna málsins en skólastjórinn virtist vera sá eini sem tók þessu öllu af ró. Hljóðið var mjög þreytandi en því var lýst sem einhverskonar suði, eins og frá viftu eða einhverju raftæki. Starfsfólkið fór því að leita að upptökum hljóðsins og á endanum rakti það upptökin til tölvurýmis skólans. Þar var allt með felldu með tölvur skólans en við blasti að níu tölvum hafði verið bætt við í tölvurýminu. Þær voru notaðar til að grafa eftir rafmynt en slíkur gröftur er orkufrekur og krefst sérstaks tölvubúnaðar. BBC skýrir frá.

Það getur verið mikið upp úr þessu að hafa enda eru margar rafmyntir verðmiklar. Það fylgir því einnig mikill kostnaður að koma sér upp búnaði til að leita að rafmynt.

Skólastjórinn hafði bætt smátt og smátt við tölvukost sinn og var að lokum kominn með 8 tölvur sem sáu um gröftinn. Hann hefur væntanlega ætlað að halda rekstrarkostnaðinum í lágmarki með því að staðsetja búnaðinn í skólanum og láta hann greiða rafmagnsreikninginn.

BBC segir að skólastjórinn hafi þó ekki verið einn að verki því aðstoðarskólameistarinn hafi einnig tekið þátt í þessu en hann var bara með eina tölvu. Auk þess að nota rafmagn skólans notuðu tölvurnar einnig netkerfið og hægðu verulega á netsambandi skólans og truflaði það kennsluna.

Ekki þarf að koma á óvart að skólastjóranum varð vikið frá störfum en aðstoðarskólastjórinn slapp með skrekkinn og fékk aðvörun.  Fjárhagslegan ávinningur skólastjóranna af greftrinum var gerður upptækur af yfirvöldum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að þú átt að fara í bað á kvöldin en ekki morgnana

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að þú átt að fara í bað á kvöldin en ekki morgnana
Pressan
Í gær

Hvernig gat Warren Jeffs náð ógnvænlegum tökum á söfnuði sínum?

Hvernig gat Warren Jeffs náð ógnvænlegum tökum á söfnuði sínum?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Varð fyrir skelfilegri árás tveggja hunda – Birtir myndir af ótrúlegum breytingum eftir 28 aðgerðir

Varð fyrir skelfilegri árás tveggja hunda – Birtir myndir af ótrúlegum breytingum eftir 28 aðgerðir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta eru hlutirnir sem flugfarþegar gera og flugþjónar hata

Þetta eru hlutirnir sem flugfarþegar gera og flugþjónar hata
Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja sig hafa fundið líkið af Pheobe Bishop

Telja sig hafa fundið líkið af Pheobe Bishop
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranar hengdu mann sem var sakaður um njósnir fyrir Ísrael

Íranar hengdu mann sem var sakaður um njósnir fyrir Ísrael