fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Svarthöfði: Grænkerar eru frekjur

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 11. nóvember 2018 15:00

Lömb Þjóðleg og heilnæm til átu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á næstunni stendur til að sameina félag grænmetisæta og félag veganista, sem nú vilja láta kalla sig grænkera. Er áætlað að meðlimafjöldinn í hinu nýja félagi verði um 400 manns og komi flestir þeirra úr fyrrnefndu samtökunum.

Engu að síður verða áherslurnar samhljóða stefnu grænkera. Það eru frekjurnar. Hvað varð um allar ærlegu grænmetisæturnar sem sáu sóma sinn í því að éta egg og mjólkurvörur? Margar af þeim höfðu einnig vit á því að borða fisk. Þetta fólk er flæmt í burtu eða beygt undir ægivald grænkeranna. Minnir þetta óneitanlega á yfirtöku BDSM á Samtökunum ’78 þar sem ærlegir hommar og lesbíur mátu lúta í gras. Fólkið sem byggði upp samtökin.

Svarthöfði hefur ekki farið varhluta af áróðri þessara grænkera. Alls staðar vaða þeir uppi með frekju og yfirgang, nú síðast í miklu havaríi fyrir utan sláturhúsið á Selfossi. Skilst Svarthöfða einnig að út sé að koma barnabók þar sem boðskapurinn er innrættur. Ætli grænkerar verði ekki brátt komnir inn í skólana og á námskrá? Og að allar dýraafurðir verði teknar úr eldhúsum hins opinbera?

Íslendingar hafa étið kjöt og drukkið mjólk frá landnámi. Við hefðum aldrei komist í gegnum fátækt og harða vetur síðasta árþúsunds á því að éta eintóman mosa og fjallagrös. Grænkerarnir sjálfir komast ekki einu sinni í gegnum tæknivæddan nútímann án þess að úða í sig verksmiðjuframleiddum bætiefnum. Segir það sitt um hversu burðug þessi stefna er.

Það er bæði þjóðlegt og heilnæmt að éta lítið lamb. Á tímum þar sem offramleiðsla er í greininni er það einnig þjóðhagsleg nauðsyn og heldur úti byggð á öllu landinu. Það sama með sjávarútveginn. Hvað eiga bátarnir að veiða? Þang? Þessir grænkerar verða að sætta sig við þá staðreynd að Ísland getur aldrei orðið korn- eða ávaxtaframleiðsluríki. Kroppar dýra smyrja hér hjól atvinnulífsins og þangað til frekjurnar komu fram á sjónarsviðið voru allir pollrólegir yfir því.

Engu að síður heldur áróðursstríðið áfram og er því fyrst og fremst beint að börnum. Vita grænkerarnir að fullorðnum og þroskuðum sálum eins og Svarthöfða verður ekki snúið svo glatt með dramatískri framsetningu og myndlíkingu. Svarthöfði veit fyrir víst að Sláturfélag Suðurlands á ekkert skylt við Auschwitz nema kannski skammstöfunina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Enn einn Snapchat-perrinn
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sjáðu myndbandið umtalaða – Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni

Sjáðu myndbandið umtalaða – Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

„Galið“ ef hún verður áfram á Íslandi

„Galið“ ef hún verður áfram á Íslandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Borga metfé fyrir frænda Maradona – Tvöfalda félagsmetið

Borga metfé fyrir frænda Maradona – Tvöfalda félagsmetið