Í gær var í fyrsta sinn dregið í nýja keppni landsliða, hina svokölluðu Þjóðadeild. Ísland dróst í riðil 2 í A deild ásamt Belgíu og Sviss. Liðin munu mætast heima og heiman en leikirnir fara fram í september, október og nóvember á þessu ári. Ísland verður að teljast nokkuð heppið með mótherja því liðið hefði getað dregist gegn enn sterkari liðum, þó að mörgum hefði eflaust hugnast betur að mæta „frægari“ þjóðum en Belgíu og Sviss. Sagan er þó ekki með Íslendingum því liðið hefur aldrei sigrað Belga eða Svisslendinga í 15 tilraunum og aðeins einu sinni náð jafntefli, gegn Sviss árið 2014. Sá leikur var sögulegur, lokatölur leiksins voru 4-4 eftir að Ísland hafði verið þremur mörkum undir í leiknum.
Þjóðadeildin er ný af nálinni en keppnin hefur verið í vinnslu í mörg ár. Fyrirkomulagið er nýstárlegt og nokkuð flókið. Til útskýringar þá er öllum landsliðum Evrópu skipt upp í fjórar deildir (A, B, C og D), upphaflega eftir styrkleika. Hverri deild er skipt niður í fjóra riðla með þremur eða fjórum þjóðum. Þau mætast innbyrðis heima og heiman og keppast um sigur í sínum riðli. Sú þjóð sem sigrar sinn riðil færist upp um deild en neðsta liðið fellur um deild. Sigurvegarar riðlanna í A deildinni færast eðlilega ekki upp heldur keppa þær þjóðir innbyrðis um titilinn Þjóðadeildarmeistari. Keppnin fer fram á tveggja ára fresti eða eftir hvert stórmót í knattspyrnu.
Utan þessa fyrirkomulags þá gefur Þjóðadeildin landsliðum einnig færi á að tryggja sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins (EM). Úr hinni hefðbundnu undankeppni EM, sem heldur áfram að mestu óbreytt, geta 20 lið tryggt sér keppnisrétt í lokakeppninni. Þá standa eftir 4 laus sæti og um þau munu bítast í umspili 16 lið úr Þjóðadeildinni, sigurvegarar allra riðlanna úr deildunum fjórum. Enn flækjast þó málin, því líklega munu margir af sigurvegurum riðlanna þegar hafa tryggt sér þátttökurétt í lokakeppninni með frammistöðu sinni í undankeppni EM. Þá er reglan sú að næsta lið þar á eftir í riðlinum sem ekki hefur tryggt sér sæti í lokakeppninni fái sæti í umspilinu.
Möguleikar Íslands á að komast í lokakeppni EM eru því tvíþættir. Annars vegar samkvæmt hinni hefðbundnu leið, með góðum árangri í undankeppni EM. Líkurnar á því verða að teljast nokkuð góðar, bæði hefur liðinu tekist að komast úr undankeppni í síðustu tvö skipti auk þess sem staða liðsins á heimslistanum eykur líkurnar á að dragast í auðveldari riðil í undankeppninni. Ef Íslandi myndi hins vegar mistakast að tryggja sæti sitt þar er nánast öruggt að liðið fengi tækifæri til að taka þátt í umspili um laust sæti vegna Þjóðadeildarinnar. Þó að andstæðingar Íslands í Þjóðadeildinni séu sterkir og líklegri en Ísland að sigra riðilinn þá er jafnframt mjög líklegt að þær þjóðir nái að tryggja sér sinn farseðil í lokakeppni EM í gegnum undankeppnina. Þannig er líklegt að umspilssætið muni falla í skaut Íslendinga, óháð því hvernig liðinu gengur í Þjóðadeildinni.
Guðfaðir deildarinnar er Michel Platini, fyrrverandi forseti UEFA, en hugmynd hans var meðal annars að útrýma tilgangslausum og óspennandi æfingaleikjum milli landsliða og auka vægi landsleikja. Tilgangurinn er því að búa til fleiri alvöru landsleiki fyrir lið um alla Evrópu en oft hefur verið kvartað yfir að æfingaleikir landsliða séu tilgangslausir og óspennandi. Þá hefur verið bent á að leikmenn mæti oft með hálfum hug í slíka leiki, meðal annars hræddir um að meiðast, og að félagslið landsliðsmannanna beiti af sömu ástæðum ýmsum brögðum til að koma í veg fyrir að landsliðsmenn mæti í æfingaleiki. Með tilkomu Þjóðadeildarinnar munu landsleikir því bæði skipta meira máli og auk þess munu þar alla jafna mætast landslið af svipaðri getu, sem ætti að gera leikina skemmtilegri og meira spennandi. Má að mörgu leyti líkja fyrirkomulaginu við skiptingu liða í yngri flokkum hér á landi, þar sem hvert félag sendir til dæmis A, B og C lið til leiks þegar farið er á mót. Þá gefur fyrirkomulag Þjóðadeildarinnar varðandi umspilssæti slakari þjóðum meiri möguleika á að komast inn á stórmót.
Það er þó ekki svo að með tilkomu Þjóðadeildarinnar heyri æfingaleikir landsliða sögunni til, það mun áfram verða gert ráð fyrir slíkum leikjum, þó þeim fækki verulega. Áfram verða gluggar fyrir æfingaleiki í aðdraganda stórmóta en Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) telur þó ekki að álagið á leikmenn aukist við þessar breytingar. UEFA hefur bent á að hið nýja fyrirkomulag muni fremur draga úr álagi og ferðalögum, það muni verða færri tilefni til að ferðast utan Evrópu þegar æfingaleikir fara fram, ferðalögin verði styttri og leikmenn komi fyrr aftur til baka til sinna félagsliða.
Þjóðadeildin verður sýnd á Stöð2 Sport þar sem hægt verður að sjá alla leiki Íslands, heima og heiman.