fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Pressan

Hvað gerist þegar Elísabet II Bretadrottning deyr? Nákvæm áætlun er tilbúin

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 16. júlí 2018 06:35

Elísabet II er sögð þreytt á fólki sem talar bara en gerir ekkert. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað gerist þegar Elísabet II Bretadrottning deyr? Þetta er eitthvað sem sumir velta eflaust fyrir sér enda er drottningin á tíræðisaldri. Víst er að það verður mikil breyting fyrir marga þegna hennar þegar hún deyr enda hefur hún verið drottning síðan 1953. Ferlið sem fer í gang þegar hún deyr hefur verið vandlega undirbúið og gengur undir heitinu „London Bridge is down“. Eitt og annað hefur spurst út um þessa áætlun, annað er getgátur og margt er á huldu og aðeins sárafáir sem vita hvað mun gerast.

Einkaritari drottningarinnar, Sir Christopher Geidt, mun tilkynna forsætisráðherra Bretlands um andlátið áður en fjölmiðlum verður tilkynnt um það. Geidt mun því næst tilkynna um andlát drottningarinnar til stjórnvalda í þeim 15 ríkjum og 36 Samveldisríkjum þar sem drottningin er þjóðhöfðingi.

BBC hefur fram að þessu fengið að vita af andláti konungborinna á undan öðrum fjölmiðlum en nú er landslagið í fjölmiðlun gjörbreytt frá því sem áður var og núna er venjan að tilkynningar um stóra atburði á borð við andlát þjóðhöfðingja séu sendar til allra fjölmiðla heimsins í gegnum fréttaveitur eins og Press Association.

Ef andlátið á sér aðdraganda, til dæmis ef drottningin hefur verið veik, munu stærstu sjónvarpsstöðvar Bretlandseyja, þar á meðal allar rásir BBC, rjúfa útsendingu og segja frá andlátinu. Ekki er óhugsandi að margar sjónvarpsstöðvar muni samtengjast BBC og sýna útsendingu ríkisstöðvarinnar um málið. Sumar sjónvarpsstöðvar munu æfa upplestur tilkynningar um andlátið ef það á sér aðdraganda. Þá verða minningarorð og myndefni tilbúið til sýningar.

Hvort sem andlátið á sér aðdraganda eða verður skyndilegt þá munu flugstjórar áætlunarflugvéla tilkynna farþegum um andlátið.

Frá Lundúnum.

Í umfjöllun Independent um málið kemur fram að líklega verði flestum vinnustöðum lokað eftir að tilkynnt hefur verið um andlátið og starfsfólk sent heim.  Því næst tekur við 12 daga sorgartímabil og lík drottningarinnar verður flutt í Buckingham Palace. Undirbúningur útfararinnar verður í fullum gangi en erkibiskupinn af Canterbury mun jarðsetja. Flaggað verður í hálfa stöng um allt land.

Á útfarardeginum sjálfum verður breski hlutabréfamarkaðurinn lokaður sem og flestir bankar. Dagurinn verður almennur frídagur sem og krýningardagur Karls prins.

Drottningin verður væntanlega jarðsett í St George‘s Chapel í Windsor Castle en þar eru bæði móðir hennar og faðir jarðsett.

Karl prins er næstur í erfðaröðinni og verður því konungur við andlát drottningarinnar. Hann mun ávarpa þjóðina að kvöldi dánardagsins. Þegar hann verður krýndur konungur getur hann ákveðið að notast við eitthvert af skírnarnöfnum sínum sem konungur en auk þess að heita Karl ber hann nöfnin Arthur, Philip og Georg. Hann getur því valið eitthvert þessara nafna sem konungsnafn sitt. Ef hann ákveður að halda sig við Karls nafnið verður hann Karl III (Charles III). Líklegt verður að teljast að Vilhjálmur sonur hans, sem er næst á eftir Karli í erfðaröðinni, verði þá prins af Wales.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óttast að ISIS láti til skarar skríða í Svíþjóð vegna Eurovision

Óttast að ISIS láti til skarar skríða í Svíþjóð vegna Eurovision
Pressan
Í gær

Merk uppgötvun í 100 ára ómerktri gröf í kirkjugarði við geðsjúkrahús

Merk uppgötvun í 100 ára ómerktri gröf í kirkjugarði við geðsjúkrahús
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn fjórum kærustum sínum – Ein man bragðið af byssuhlaupinu

Dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn fjórum kærustum sínum – Ein man bragðið af byssuhlaupinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bankabækur Dana tútna út

Bankabækur Dana tútna út
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ertu að taka inn lyf að staðaldri? – Þá er þetta gott að hafa í huga

Ertu að taka inn lyf að staðaldri? – Þá er þetta gott að hafa í huga
Pressan
Fyrir 4 dögum

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari