Á ellefta tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um slagsmál í Kópavogi. Tveir voru handteknir vegna málsins og vistaðir í fangageymslu. Ekki er vitað um alvarleika meiðsla árásarþolans á þessari stundu. Um klukkan 23 í gærkvöldi óskaði húsráðandi í austurborginni eftir aðstoð vegna fólks sem væri óvelkomið í húsi hans. Einn var handtekinn og vistaður í fangageymslu en sá er grunaður um líkamsárás og eignaspjöll.
Fjórir ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra reyndist vera sviptur ökuréttindum.
Akstur eins ökumanns var stöðvaður í gærkvöldi þar sem hann reyndist vera sviptur ökuréttindum.