Þetta fór þó út um þúfur því þeir fundu enga liðsmenn Brothas og fóru því aftur upp í bílana sem var síðan ekið um hverfið. Um fimm mínútum síðar réðust þeir á 24 ára karlmann á Tagensvej. Þar fóru liðsmenn LTF út úr bílunum og réðust grímuklæddir á manninn, stungu hann, börðu og spörkuðu í hann. Hann var stunginn minnst níu sinnum í bakið og einu sinni í höfuðið.
Árásarmennirnir óku síðan á brott á miklum hraða og skildu fórnarlambið eftir liggjandi í blóði sínu, í lífshættu.
Maðurinn hefur engin tengsl við glæpasamtök og virðist hafa orðið fórnarlamb fyrir algjöra tilviljun. Af því að hann var á röngum stað á röngum tíma.
Réttarhöld í málinu standa nú yfir á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn. 15 meðlimir LTF eru ákærðir fyrir morðtilraunir þrátt fyrir að þeir hafi ekki fundið þá sem þeir ætluðu að drepa og árásina á manninn á Tagensvej. Ef þeir verða sakfelldir eiga þeir allt að lífstíðarfangelsi yfir höfði sér en ef ekki verður fallist á það er líklegt að refsingin verði 20 ára fangelsi. Þessar þungu refsingar eru tilkomnar vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar gegn skipulögðum glæpagengjum. Á síðasta ári samþykkti þingið lög sem heimila dómstólum að tvöfalda refsingu ef afbrot eru framin liður í átökum glæpagengja.
Fyrir tveimur vikum var háttsettur liðsmaður LTF dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að hafa skotið á tvo hjólreiðamenn á Norðurbrú og fyrir að stofna lífum þriggja til viðbótar í hættu en hann skaut 11 skotum. Saksóknari fór fram á lífstíðarfangelsi en dómari féllst ekki á það.