

„Vissulega tapaði ég peningum. En það þýðir þó ekki að maður tapi öllu,“ segir Logi Geirsson fyrrverandi atvinnumaður í handbolta og landsliðsmaður en hann var í ítarlegu forsíðuviðtali hjá DV á dögunum. Fyrirsögnin var „Ég tapaði öllu“ en meðal annars greindi Logi frá því að hann hefði tapað miklum fjármunum á fasteignabraski erlendis. Hann vill þó árétta að fyrirsögnin hafi ekki þá merkingu sem margir halda.
„Ég myndi segja að á árunum 2008 og 2009 hafi ég getað sagst eiga pening. En út af fasteignabraskinu þá hef ég þurft að vinna mig upp aftur, alveg frá núlli. Eiginlega úr mínus. Það fór allt,“ lét Logi meðal annars hafa eftir sér í viðtalinu. „Ég var búinn að sjá fyrir mér að ég kæmi heim með hundruð milljóna á reikningnum. Að ég ætti nokkrar íbúðir úti í Þýskalandi og væri vel stæður eftir tíu ár í viðbót í atvinnumennskunni. Sem ég sá fyrir mér að spila. En svo var þessu öllu kippt undan mér. Allt gerðist á sama tíma. Ég meiðist og íbúðavesenið byrjar.“
Logi tjáir sig viðtalið og ummælin í færslu á fésbók. „Ég var eins og alþjóð tók eftir á skjánum hjá landsmönnum á Rúv á meðan EM stóð. Þar fór allt á hliðina þegar ég mætti með gullbindið og allt fór á flug í kjölfarið. Síminn stoppaði ekki og ég ákvað eftir nokkur ár í svona hálfgerðri fjölmiðlaútlegð að gefa aðeins af mér,“ ritar hann og bætir við að í kjölfarið hafi birtst við hann viðtöl í útvarpi og sjónvarpi og síðan á DV. Fyrirsögnin „Ég tapaði öllu“ hafi þó farið fyrir brjóstið á honum.
Segir Logi að það sé talsverður munur á því að tapa veraldslegum gæðum en það sé ekki það sama og að tapa því sem ekki fæst keypt úr búð. „Vissulega tapaði ég peningum. En það þýðir þó ekki að maður tapi öllu. Peningar koma og fara. Ég tala um það að tapa öllu þegar menn tapa heilsunni, vinum & fjölskyldu.“