fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Öryrkjabandalag Íslands: „Sjö af hverjum tíu úti í kuldanum“

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 22. desember 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öryrkjar spila Skerðingu – ömurlegt spil fyrir alla fjölskylduna – á Austurvelli við þingsetningu. 

Öryrkjabandalag Íslands segir að nýtt fjárlagafrumvarp muni skilja um 70 prósent öryrkja eftir úti í kuldanum, þar sem aðeins 29 prósent fái uppgreiðslu á lífeyri, samkvæmt fyrstu umræðu um frumvarpið á Alþingi. Þetta segir í tilkynningu frá Öryrkjabandalaginu:

Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs var gert ráð fyrir því að 14 prósent öryrkja fengju uppfærslu á lífeyri frá Tryggingastofnun sem hefði í för með sér að heildartekjur þeirra geta náð upp í um 300 þúsund krónum á mánuði, sem eru lágmarkslaun frá næstu áramótum. Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis hefur, eftir fyrstu umræðu um frumvarpið, lagt til breytta nálgun, sem felur í sér að 29 prósent öryrkja fá þessa viðbót. Áætlað er að þessi leið kosti ríkissjóð 166 milljónir króna umfram það sem áætlað var í frumvarpinu.

 

„Þó það sé vissulega jákvætt að ríkisstjórnin hafi séð til þess að fleiri fái þessar örfáu krónur þá erum við verulega vonsvikin vegna 71% örorkulífeyrisþega sem breytingin nær ekki til,“

 

segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.

Forysta Öryrkjabandalags Íslands hefur lagt nótt við dag, frá því að fjárlagafrumvarpið kom fram, til að sýna stjórnvöldum og þingmönnum fram á, að bæta verði kjör öryrkja nú þegar. Kaupmáttur heildartekna þeirra hefur rýrnað ár frá ári. Byrði vegna húsnæðiskostnaðar hefur aukist auk þess sem sýnt hefur verið fram á að skattbyrði hefur þyngst mest hjá þeim sem minnst hafa.
Fyrir alþingiskosningarnar 2016 og 2017 hafa stjórnmálaflokkarnir allir sem einn lofað því að bæta kjör öryrkja. Ljóst er að bæta þarf verulega í, um það eru allir sammála. Samt sem áður fer enn lítið fyrir efndum.
Flestir enn útundan
Viðbótin sem meirihluti fjárlaganefndar leggur til er í formi tilfærslu, þannig að í stað þess að setja 2,4 prósent í sérstöku framfærsluuppbótina (sem skerðist krónu á móti krónu), verði lagt aukið fjármagn, 166 milljónir króna, og viðbótin í málaflokkinn færð inn í heimilisuppbót. Þetta hefur í för með sér hækkun á tekjum þeirra sem búa einir, eða eru ein með börn. Hins vegar verða lang flestir úr hópi örorkulífeyrisþega útundan (eða 71%).

 

„Þegar upp er staðið sjáum við að sjö af hverjum tíu örorkulífeyrisþegum fá ekki þessa viðbót. Þau eru skilin eftir. Það er ekki hægt að orða þetta skýrar. Við erum til dæmis að tala um fólk sem býr með annarri fullorðinni manneskju, sem stundum er foreldri með átján ára ungmenni á heimilinu. Stundum leigir fólk með öðrum en maka og svo framvegis,“

 

segir Þuríður Harpa.

 
Einstaklingur verður að búa einn í eigin húsnæði eða vera með þinglýstan leigusamning til þess að eiga möguleika á þeirri viðbót sem meirihluti fjárlaganefndar leggur til. Þetta er því miður ekki tilfellið með marga lífeyrisþega.
Uppfærslan á greiðslum til lífeyrisþega um 4,7 prósent, sem lögð er til í fjárlagafrumvarpinu, mun þýða að óskertur lífeyrir almannatrygginga fer úr tæpum 228 þúsund krónum á mánuði fyrir skatt, í rúmlega 238 þúsund krónur á mánuði. Nettó upphæðin nemur innan við sjö þúsund krónum á mánuði.

 
Skerðingar verður að afnema
Það blasir við öllum að ganga þarf mun lengra til þess að búa fólki mannsæmandi kjör auk þess sem brýnt er að afnema tekjuskerðingar. Á það leggur Öryrkjabandalag Íslands áherslu. Ljóst er að fólki er haldið í fátæktargildru. Tekjuskerðingar eru verulegar þrátt fyrir lágar tekjur. Allar skattskyldar tekjur yfir eina krónu á mánuði skerða sérstöku framfærsluuppbótina krónu-á-móti-krónu, sem örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar með lægstu tekjurnar eru með. Þessar skerðingar verður að afnema og bæta þarf enn í til þess að bæta kjör þeirra sem verða útundan, þrátt fyrir þessa viðleitni stjórnvalda. Þingmenn allra stjórnmálaflokka á Alþingi lofuðu að afnema krónu-á-móti-krónu skerðingar í aðdraganda síðustu tveggja alþingiskosninga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki