fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Kertagleði í desember – Taktu þátt í endurvinnsluátaki þar sem hægt er að vinna til verðlauna

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 15. desember 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um jólin er kertagleði landsmanna í hámarki þó að margir kveiki á kertum allan ársins hring. Á hverju ári nota landsmenn um 3 milljónir sprittkerta. Til að setja hlutina í samhengi, þá dugar álið úr þremur sprittkertum í eina drykkjardós og einungis þarf þúsund sprittkerti til að búa til reiðhjól.

Endurvinnsluátakið „Gefum jólaljósum lengra líf – endurvinnum álið í sprittkertunum“ hófst 6. desember síðastliðinn og stendur til 31. janúar 2018. Tilgangurinn með átakinu er að fá fjölskyldur til að skila álinu í sprittkertum til endurvinnslu og efla vitund Íslendinga um mikilvægi þess að endurvinna það ál sem fellur til á heimilum og hjá fyrirtækjum.

Skila má sprittkertum á um 90 endurvinnslu- og móttökustöðvar um allt land eða setja þau bara laus í grænu tunnurnar.

Ál hefur þá sérstöðu að það má nýta aftur og aftur án þess að það tapi upprunalegum eiginleikum sínum. Einungis þarf um 5% af orkunni sem fór upphaflega í að framleiða álið til að endurvinna það. Það þýðir að mikil verðmæti leysast úr læðingi við endurvinnslu álsins og færir það stoðir undir rekstur endurvinnslufyrirtækja víða um Evrópu.

Þá dregur orkusparnaðurinn við endurvinnslu áls verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, enda verður almennt mest losun frá orkuvinnslunni við framleiðslu áls í heiminum.

Fylgjast má með átakinu á Facebooksíðu þess. Efnt verður til leiks á Instagram í samstarfi við Mbl. is, þar sem veitt verða verðlaun fyrir fallegustu sprittkertamyndina.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.