

Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu er nú lokaður.
Það er hins vegar alltaf nóg af slúðri en það er BBC sem tók saman.
—————-
Leicester vildi ekki lána Islam Slimani til West Ham eftir að vara- formaður félagsins gagnrýndi Leicester fyrir að reka Carlo Ancelotti. (Guardian)
Manchester United ætlar sér að fá miðjumann í sumar til þess að reyna ná því besta út úr Paul Pogba. (Mail)
Arsenal ætlar sér að fá Malcom í sumar frá Bordeaux. (Evening Standard)
Þá ætlar félagið að reyna fá Jan Oblak, markmann Atletico Madrid. (Evening Standard)
Riyad Mahrez á von á hárri fjársekt frá Leicester fyrir að mæta ekki á æfingu. (Mirror)
Liðsfélagar hans eru afar ósáttir með hann og viðhorf hans til félagsins. (Sun)
Antonio Conte mun hætta með Chelsea í sumar. (Guardian)
Ítalska knattspyrnusambandið vill fá Conte til þess að taka við ítalska landsliðinu á nýjan leik. (Sun)
Manchester United vill fá Mauricio Pochettino til þess að taka við liðinu þegar Jose Mourinho hættir. (Manchester Evening News)