

Framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, Hrólfur Ölvisson, tengdist tveimur félögum sem skráð voru á Tortóla. Eyjan greinir frá þessu. Þar segir Hrólfur að markmið annars félagsins hafi verið að skýla eignartengslum og íslenskum nýjungum í samkeppni við sambærileg fyrirtæki í Evrópu. Hitt félagið hélt utan um einkaleyfi varðandi vátryggingar. Kemur þetta fram í gögnum sem Eyjan hefur undir höndum.
Hrólfur gerðist framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins árið 2010. Þá segir í frétt Eyjunnar að félögin hafi verið virk á árunum fyrir hrun. Segir Hrólfur að hann hafi hætt afskiptum af öðru félaginu árið 2009 og hinu 2005.