

Paul Pogba telur að Michael Carrick geti náð góðum árangri sem knattspyrnustjóri Manchester United og segir fyrrum liðsfélaga sinn vera rétta manninn til að leiða félagið til framtíðar.
Pogba, sem leikur nú með Mónakó og er 33 ára gamall, lék tvö tímabil hjá Manchester United og þekkir Carrick vel bæði sem liðsfélaga og þjálfara. Carrick var aðstoðarþjálfari Ole Gunnar Solskjær á meðan Pogba var hjá félaginu.
Carrick skrifaði nýverið undir nýjan samning við United eftir að hafa stýrt liðinu í fimm mánuði með góðum árangri. Undir hans stjórn náði félagið þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu á ný.
Í samtali við Sky Sports News sagði Pogba að Carrick hefði þegar sýnt hæfileika sína sem þjálfari.
„Hann er að vinna frábært starf og gerði það einnig þegar hann var aðstoðarþjálfari hjá Ole. Hann er frábær maður, hefur mikla reynslu, var frábær leikmaður og á mjög gott samband við leikmennina,“ sagði Pogba.
Frakkinn telur að tengsl Carricks við leikmannahópinn séu einn af stærstu styrkleikum hans.
„Ég held að þetta verði mjög gott fyrir Manchester United. Ég óska honum, starfsfólkinu og leikmönnunum alls hins besta,“ bætti Pogba við.