

Undirbúningur enska landsliðsins fyrir Heimsmeistaramótið hefur vakið athygli eftir að í ljós kom að vináttuleikur liðsins gegn Nýja-Sjálandi verður leikinn á velli sem var lagður fyrir aðeins um viku síðan.
Lið Thomas Tuchel mætir Nýja-Sjálandi á Raymond James Stadium í Tampa í Flórída á laugardag. Völlurinn er heimavöllur NFL-liðsins Tampa Bay Buccaneers, en nýtt gras var lagt á leiksvæðið skömmu fyrir komu liðanna.
Myndir sem teknar voru af vellinum á fimmtudag sýna að yfirborðið virðist ekki hafa náð að festa sig að fullu. Sérfræðingar í vallargerð segja að ákveðnir hlutar vallarins virðist enn ekki hafa „runnið saman“ og að grasrótarkerfið hafi ekki haft nægan tíma til að þróast.
Slíkir vellir eru oft kallaðir „plug and play“ vellir þar sem þeir eru hannaðir til að vera leikfærir aðeins nokkrum dögum eftir lagningu.
Starfsmenn enska knattspyrnusambandsins hafa verið í samskiptum við vallaryfirvöld vegna málsins, enda vilja menn tryggja að aðstæður verði öruggar fyrir leikmenn.
Málið rifjar upp undirbúning HM 2014 þegar Alex Oxlade-Chamberlain meiddist alvarlega í vináttuleik í Flórída og missti af mótinu. Enska landsliðið vonast til að sagan endurtaki sig ekki að þessu sinni.