

Nýjar upplýsingar hafa komið fram um erfiða tíma Arne Slot hjá Liverpool áður en hollenski stjórinn var látinn taka pokann sinn í síðustu viku.
Slot var rekinn eftir vonbrigðatímabil þar sem Liverpool endaði aðeins í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og tapaði alls 20 leikjum í öllum keppnum. Það kom mörgum á óvart þar sem hann hafði stýrt félaginu til Englandsmeistaratitils á sínu fyrsta tímabili.
Samkvæmt þýska miðlinum Bild skapaðist spenna á milli Slot og nokkurra leikmanna sem komu til félagsins frá þýsku Bundesligunni. Miðillinn heldur því fram að gagnrýni stjórans hafi stundum farið yfir mörkin og blandast hroka og persónulegum athugasemdum.
Slot er sagður hafa spurt nýja leikmenn: „Hefurðu unnið ensku úrvalsdeildina?“ Þá hafi hann einnig grínast með orðunum. „Þú getur spilað svona í Þýskalandi.“
Ummælin áttu meðal annars að hafa beinst að leikmönnum sem komu frá Bundesligunni í stóru félagaskiptasumri Liverpool. Florian Wirtz gekk til liðs við félagið frá Bayer Leverkusen fyrir um 116 milljónir punda, Hugo Ekitike kom frá Eintracht Frankfurt og Jeremie Frimpong frá Leverkusen.
Wirtz og Frimpong voru lykilmenn í sögulegum meistaratitli Leverkusen árið 2024 og þóttu ummæli Slot því ekki falla í góðan jarðveg hjá öllum.
Þrátt fyrir þessar fréttir var Slot oft opinberlega stuðningsríkur gagnvart leikmönnum sínum. Hann hrósaði meðal annars Wirtz fyrir framfarir hans undir lok síðasta tímabils og sagði Þjóðverjann aðeins eiga eftir að verða betri á komandi árum.