

RÚV er með sýningaréttinn á Heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu sem hefst í næstu vikur. Stór hluti leikja verður sýndur á hliðarrás RÚV frekar en á aðalrás ríkismiðilsins.
104 leikir fara fram á HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Bestu leiktímarnir eru frá 19:00 til 22:00 á kvöldin, þeir leikir fá ekkert pláss á RÚV fyrr en þegar langt er liðið á mótið.
Í riðlakeppninni og í 32 liða úrslitum eru allir þeir leikir sem eru á bestu tíma fyrir Íslendinga settir á RÚV 2. Þá verður HM kvöldið frumsýnt á RÚV2 en fær pláss á aðalrás félagsins í kringum miðnætti.

Nokkuð margir leiktímar eru á næturnar og þá færast þeir leikir yfir á RÚV. Er þetta í takt við þá stefnu sem Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV hefur talað fyrir og gerði á stjórnarfundi RÚV í vetur.
Í fundargerð stjórnar kom fram að á fundinum hafi verið rætt um samspil á milli RÚV 1 og RÚV 2 þegar kemur að íþróttum og fréttum. Óskaði Stefán Jón eftir skýrari línum um verkaskiptingu sjónvarpsrásanna.
„Nefndi til dæmis að í útvarpi væri Rás 2, „íþróttarásin” að öllu jöfnu og gæti sama átt við sjónvarp. Stefna ætti að því að hnika ekki föstum aðalfréttatíma sjónvarps sem nú sé kl. 19:00 á RÚV 1 að óþörfu meðan RÚV 2 væri ónotuð. Að hans mati væri fréttatíminn gengisfelldur með því að færa hann á breytilega jaðartíma í dagskrá og gæta yrði að því að hlutverk og ábyrgðarskylda RÚV gagnvart fréttaflutningi væri víðtæk og mikil, ekki síst þegar framboð af kvöldsjónvarpsfréttum almennt væri minna nú en áður,“ segir í fundargerð stjórnar.
Það er því ljóst að Stefán Jón hefur fengið sínu framgengt en hingað til hefur fréttatíminn verið færður þegar stærstu íþróttaviburðir hvers árs fara fram. Hjá BBC í Bretlandi er til dæmis aðalstöð ríkismiðilsins nýtt í að sýna alla leikina sem þeir hafa rétt til að sýna, annari dagskrá er hliðrað til á meðan mótið fer fram.