fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Ísfélagið vigtar aflann hjá fyrirtæki í eigu forstjórans eftir afturköllun leyfis

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 7. júní 2026 09:00

Þórshöfn Mynd: Langanesbyggð.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Afli Ísfélagsins fer í endurvigtun hjá Fiskmarkaði Þórshafnar, fyrirtæki í eigu forstjóra Ísfélagsins, eftir að að vigtunarleyfi Ísfélagsins var afturkallað. Líkt og Eyjan fjallaði um í vikunni afturkallaði Fiskistofa vigtunarleyfi Ísfélagsins á Þórshöfn í hálft ár frá og með 1. júní þar sem ekki hafi verið gengið úr skugga um að vigt sem var notuð til endurvigtunar á þorski í janúar í fyrra uppfylli skilyrði löggildingar.

Sjá frétt: Ísfélagið missir vigtunarleyfi í hálft ár

Heimildarmenn Eyjunnar sem þekkja til á Langanesi segja að eftir að vigtunarleyfið var afturkallað hafi afli af bát Ísfélagsins endurvigtaður af Fiskmarkaði Þórshafnar, þaðan er aflinn sendur í vinnslu. Samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins er stjórnarmaður og raunverulegur eigandi þess Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins.

Ákvörðunin íþyngjandi

Ákvörðun Fiskistofu hefur vakið mikla athygli þar sem talað er um að „átt hafi verið við vigtina“ með þeim afleiðingum að hún vigtaði alltaf um 6 til 7 prósentum minna en aðrar vigtir.

Ísfélagið fór fram á aðra rannsókn á málinu til að hægt sé að koma sjónarmiðum fyrirtækisins á framfæri. Þá sé ákvörðunin um að afturkalla vigtunarleyfið íþyngjandi fyrir Ísfélagið: „Fyrirhuguð stjórnvaldsákvörðun Fiskistofu telst verulega íþyngjandi fyrir Ísfélagið, auk þess sé deilt um málsatvik, þ.á.m. forsendur fullyrðinga Fiskistofu sem eru ekki alls kostar ljósar,“ segir í athugasemdum Ísfélagsins til Fiskistofu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ísfélagið missir vigtunarleyfi í hálft ár – Fiskistofa telur að átt hafi verið við vigtina

Ísfélagið missir vigtunarleyfi í hálft ár – Fiskistofa telur að átt hafi verið við vigtina
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Albert Jónsson: Ísland eina ríkið til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður – aldrei gerst áður

Albert Jónsson: Ísland eina ríkið til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður – aldrei gerst áður
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: Nei, Ingibjörg Sólrún, þetta er kjarni málsins

Haraldur Ólafsson skrifar: Nei, Ingibjörg Sólrún, þetta er kjarni málsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Harðlínan gegn meirihlutanum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Harðlínan gegn meirihlutanum