fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
433Sport

Guardiola hótaði því 100 sinnum að segja upp hjá City

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. júní 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City formaðurinn Khaldoon Al Mubarak hefur opnað sig um samband sitt við Pep Guardiola og sagt að Spánverjinn hafi hótað að hætta „100 sinnum“ á sínum tíma hjá félaginu.

Guardiola kvaddi City nýverið eftir áratug við stjórnvölinn þar sem hann skilaði áður óþekktum árangri. Al Mubarak líkti honum við söguna um drenginn sem kallaði úlfur úlfur og sagði að slíkar yfirlýsingar hefðu ekki alltaf verið teknar alvarlega.

„Ég lít stundum á mig sem sálfræðing hans,“ sagði Al Mubarak. „Í erfiðum tímum sagðist hann oft vilja hætta, en það þýddi ekki að hann væri raunverulega að fara.“

Hann bætti við að í gegnum árin hafi hann yfirleitt sannfært Guardiola um að halda áfram, en að þessu sinni hafi verið ljóst að þetta væri endanleg ákvörðun.

„Þegar þessi stund kom vissi ég að hún var raunveruleg og þá reyndi ég ekki að stoppa hann,“ sagði hann.

Al Mubarak segir að áhrif Guardiola á enska knattspyrnu séu óumdeilanleg og að hann hafi breytt deildinni sjálfri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Breytt stefna á RÚV sem setur Heimsmeistaramótið í annað sætið

Breytt stefna á RÚV sem setur Heimsmeistaramótið í annað sætið
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Pogba tjáir sig um ráðningu United á Carrick

Pogba tjáir sig um ráðningu United á Carrick
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sara Björk kynnt til leiks hjá Haukum með gæsahúðar myndbandi

Sara Björk kynnt til leiks hjá Haukum með gæsahúðar myndbandi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Spilað þrjá leiki á fimm árum en skrifar undir nýjan samning – Hefur sérstaklega hjálpað þessum leikmanni United

Spilað þrjá leiki á fimm árum en skrifar undir nýjan samning – Hefur sérstaklega hjálpað þessum leikmanni United
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fyrsta tilboði hafnað en viðræður halda áfram – Eigandinn gæti verið til vandræða

Fyrsta tilboði hafnað en viðræður halda áfram – Eigandinn gæti verið til vandræða