
Íslenska kvennalandsliðið mætir Úkraínu klukkan 16 í dag í afar mikilvægum leik í undankeppni HM. Veðbankar gera fastlega ráð fyrir íslenskum sigri.
Ísland er með 3 stig í riðlinum, einmitt eftir sigur á Úkraínu á heimavelli. Heimsmeistarar Spánar og Evrópumeistarar Englands eru einnig í riðlinum og hafa hvorki Ísland né Úkraína sótt stig gegn þeim.
Það er þó afar mikilvægt að halda í 3. sæti riðilsins og það gera Stelpurnar okkar með því að forðast tap í dag. Með því fengju þær mun hagstæðari drátt í umspilinu fyrir HM í Brasilíu næsta sumar.
Veðbankar eru á því að það takist og jafnvel gott betur, en á Lengjunni er stuðull á sigur Íslands aðeins 1,32. Er hann 7,32 á sigur Úkraínu og 4,09 á jafntefli.
Leikurinn fer fram í Póllandi.