fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Þetta sagði Áslaug Arna nákvæmlega um framtíðaráformin: „Ég útiloka það ekki“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 4. júní 2026 12:30

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Mynd: Skjáskot YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur sagt skilið við stjórnmálin, að minnsta kosti í bili. Hún hefur verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins í tíu ár, ráðherra og oddviti í Reykjavík. Með brotthvarfi Áslaugar eru aðeins tveir eftir úr ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem sitja enn á þingi, það eru þeir Guðlaugur Þór Þórðarson úr Sjálfstæðisflokki og Sigurður Ingi Jóhannsson úr Framsóknarflokki.

Bjarni Benediktsson hætti á þingi í janúar í fyrra og varð framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins ári síðar, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hætti á þingi í apríl síðastliðnum þegar hún var skipuð sendiherra í Lundúnum.

Mikil forviti er um hver næstu skref verða hjá Áslaugu Örnu, hvort hún sé að fara að taka við nýju starfi og þá hvar. Hún sagði við Vísi í gær að ekkert væri til í því að hún ætlaði að taka við ritstjórn Morgunblaðsins.

„Fyrir mig þá er ég búin að starfa í ríkisstjórn, tveimur ríkisstjórnum sem ráðherra, verið oddviti Sjálfstæðisflokksins,“ sagði hún í viðtali í Þjóðmálum í gær.

„Fyrir mér er þetta réttur tímapunktur. Ég er 35 ára, búin að vera 10 ár í þingmennsku og hefur alltaf langað að gera eitthvað annað.“

Talaði hún um að taka áhættu og fylgja sinni sannfæringu.

„Ég vissi ekki hvenær sá tímapunktur kæmi og fyrir mig líka þá hef ég verið talsmaður þess að fólk taki áhættur og fylgi eigin sannfæringu, og ég er líka að gera það.“

Var hún svo spurð hvort hún sæi fyrir sér að fara aftur í stjórnmálin síðar.

„Ég útiloka það ekki.“

Ítrekaði Áslaug að hún hafi talað fyrir því að stjórnmál væru ekki ævistarf:

„Ég ákvað að þetta væru ákveðin kaflaskil í mínu lífi, tækifæri til að nýta reynslu mína og þekkingu á öðrum vettvangi.“

Hún var svo spurð beint út í framtíðaráform sín í Kastljósi í gærkvöldi:

„Ég er ekki búin að taka ákvörðun um það. Það er bara einlæglega staðan,“ sagði Áslaug Arna.

„Ég vildi taka þessa ákvörðun sjálfstætt burtséð frá því hvaða störf bjóðast og hvað er þarna úti fyrir mig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón og Áslaug Arna endurbirta málverk Þrándar af sér í nasistabúningi: „Nú er öldin önnur“

Jón og Áslaug Arna endurbirta málverk Þrándar af sér í nasistabúningi: „Nú er öldin önnur“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hildur orðin borgarstjóri – Pétur óttast að breytingarnar séu til að koma burt Palestínufánanum

Hildur orðin borgarstjóri – Pétur óttast að breytingarnar séu til að koma burt Palestínufánanum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hannes Örn Blandon skrifar: Greinin sem fékkst ekki birt á Vísi

Hannes Örn Blandon skrifar: Greinin sem fékkst ekki birt á Vísi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Miðflokkurinn er ekki stjórntækur

Sigmundur Ernir skrifar: Miðflokkurinn er ekki stjórntækur