fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
Fréttir

Valdimar þakkar fyrir sig eftir krefjandi daga – Fær mikið hrós frá Hafnfirðingum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. maí 2026 08:20

Valdimar Víðisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valdimar Víðisson, fráfarandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að síðustu dagar hafi verið krefjandi og margt verið sagt um hann og hans persónu. Hann þakkar fyrir sig í færslu á Facebook í morgun enda líður senn að því að hann láti af störfum sem bæjarstjóri.

Margt benti til þess að Valdimar yrði áfram bæjarstjóri í Hafnarfirði eftir sveitarstjórnarkosningarnar enda hélt meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks velli. Það breyttist hins vegar í síðustu viku þegar Sjálfstæðismenn ákváðu að slíta viðræðum við Framsókn á þeim forsendum að Valdimar hefði gerst sekur um trúnaðarbrest. Hafa Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Viðreisn ákveðið að mynda meirihluta saman.

Gengur stoltur frá borði

„Kæru Hafnfirðingar. Nú líður að því að ég láti af starfi sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Það hafa verið í senn forréttindi og heiður að fá tækifæri til að gegna þessu starfi. Í umboði ykkar og fyrir ykkur. Ég geng stoltur frá borði. Stoltur af því hvernig ég tókst á við þetta skemmtilega verkefni, stoltur yfir því að hafa náð að breyta ásýnd bæjarstjórastarfsins og færa það nær fólkinu en fyrst og fremst stoltur og þakklátur fyrir það eitt að hafa fengið að starfa með og fyrir ykkur,“ segir hann meðal annars og ræðir svo atburði síðustu daga lauslega.

„Síðustu dagar hafa verið krefjandi. Margt sem hefur verið sagt um mig og mína persónu. Orð sem ég tek að sjálfsögðu nærri mér. En allir hafa rétt á sinni skoðun og að tjá hana. Ég sjálfur hef tamið mér það að sýna öllum virðingu í orði og verki, ég er orðvar og legg áherslu á heiðarleika og einlægni. Það eru eiginleikar sem ég er stoltur af og hafa einkennt öll mín störf hvort sem það er skólastjóri, bæjarfulltrúi eða bæjarstjóri.“

Nýr kafli að hefjast

Valdimar bendir á að Framsóknarflokkurinn hafi unnið góðan sigur í kosningunum þann 16. maí og bætt við sig 11% fylgi og einum borgarfulltrúa. „Framsókn mun halda áfram að vinna vel og af heilindum fyrir ykkur. Því getið þið treyst,“ segir hann.

Hann óskar svo nýjum meirihluta og verðandi bæjarstjóra alls hins besta í þeirra störfum.

„Við erum öll saman í þessu verkefni en það er að vinna vel fyrir Hafnarfjörð og Hafnfirðinga. Framundan hjá mér er kærkomið nokkurra vikna frí. Ég ætla að nýta það frí vel, nýta tímann með mínu nánasta fólki, konunni minni, börnunum mínum og barnabörnum. Ég veit að það bíða mín spennandi verkefni handan við hornið. Nýr kafli að hefjast, kafli sem ég hlakka til að takast á við. Ég kveð ykkur með hlýju, virðingu og bjartsýni fyrir hönd Hafnarfjarðar. Ég mun halda áfram að vera út um allt í Hafnarfirði með ykkur Hafnfirðingum enda hvergi betra að vera.”

Fjölmargar athugasemdir hafa verið skrifaðar við færslu Valdimars og eru þær flestar á einn veg. Þar er bæjarstjóranum þakkað fyrir góð störf og segjast margir munu sakna hans eins og meðfylgjandi athugasemdir sýna.

„Það verður mikil eftirsjá af þér. Takk fyrir öll þín góðu verk.“

„Þú getur verið stoltur af allri þinni vinnu hingað til fyrir Hafnarfjörð, vinur minn.“

„Þín valdatíð hefur boðið af sér góðan þokka. Góða lukku áfram!“

„Hefur staðið þig ótrúlega vel og mátt ganga stoltur frá borði!!“

„Einmitt þessi orð lýsa því hvaða gull þú ert af manni. Takk fyrir þín störf sem bæjarstjóri og þá natni, auðmýkt og hlýju sem þú lagðir í embættið og fyrir Hafnarfjörð allan.“

„Besti bæjarstjórinn. Gangi þér allt í haginn í framtíðinni.“

„Mikill missir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Rússar harðlega gagnrýndir fyrir að hafa notað ákveðið vopn í Úkraínu

Rússar harðlega gagnrýndir fyrir að hafa notað ákveðið vopn í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fær ekki endurgreitt eftir að hafa mistekist að sanna meintar blekkingar gistiheimilis

Fær ekki endurgreitt eftir að hafa mistekist að sanna meintar blekkingar gistiheimilis
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Víetnömsk kona flutt úr landi í lögreglufylgd – Hafði búið og starfað hér í fimm ár

Víetnömsk kona flutt úr landi í lögreglufylgd – Hafði búið og starfað hér í fimm ár
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona á miðjum aldri pantaði „sjálfsvígspakka“ í pósti – Sendi synina með pabba sínum í burtu

Kona á miðjum aldri pantaði „sjálfsvígspakka“ í pósti – Sendi synina með pabba sínum í burtu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sammála um að heilbrigðiseftirlitið eigi ekki að hafa neitt um Reykjavíkurflugvöll að segja – Vinnsla nýs starfsleyfis hefur tekið tvö ár

Sammála um að heilbrigðiseftirlitið eigi ekki að hafa neitt um Reykjavíkurflugvöll að segja – Vinnsla nýs starfsleyfis hefur tekið tvö ár
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir menn stálu skartgripum fyrir milljónir af heimili í Hafnarfirði

Tveir menn stálu skartgripum fyrir milljónir af heimili í Hafnarfirði