fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Nýtt vopn skelfir Rússa – Beinir flugskeytum Pútíns af leið

Pressan
Sunnudaginn 7. júní 2026 18:30

Úkraínski fáninn blaktir nærri Lyman. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öll hugsanleg tækni er notuð í stríðinu í Úkraínu. Nú hefur nýtt vopn verið tekið í notkun af Úkraínumönnum og það breytir gangi stríðsins töluvert og skelfir Rússa.

Þetta er háþróað kerfi sem nefnist Lima. Onet segir að virkni þess sé svo góð að bestu rússnesku flugskeytin eigi í vanda.

Þetta kerfi var fyrst þróað 2022 og tekið í notkun 2023 og er nú orðið undirstaðan í loftvörnum Úkraínu enda búið að þróa kerfið enn betur.

Tölurnar tala sínu máli um virkni kerfisins. Á fyrstu mánuðum ársins hefur kerfið unnið á 26 langdrægum Kindzjal-flugskeytum, 33 skammdrægum flugskeytum og rúmlega 10.000 drónum.

Kerfið virkar þannig að það ræðst beint á „heila“ flugskeytanna. Fyrst truflar það merkjasendingar til og frá flugskeytinu og síðan lætur það flugskeytinu röng hnit í té og að lokum fær það röng gögn frá gervihnöttum sem gerir að verkum að það breytir um stefnu og hæfir ekki skotmark sitt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Sífellt fleiri Danir láta brenna lík sitt í pappaöskju

Sífellt fleiri Danir láta brenna lík sitt í pappaöskju
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann
Pressan
Í gær

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Í gær

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum