fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist

Pressan
Sunnudaginn 7. júní 2026 16:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við þekkjum rútínuna – Veturinn skellur á, hitinn lækkar og skyndilega eru allir kvefaðir og hnerrandi í kringum okkur.

Maður klæðir sig enn betur, dregur húfuna vel niður og vonar að þetta dugi. En samt sem áður er eins og veikindin nái að smeygja sér inn og skiptir þá engu hversu vel maður pakkaði sér inn.

En kannski höfum við einblínt á ranga staði líkamans.

Kuldi breytir vörnum líkamans

Þegar hitastigið lækkar, breytist hversdagslíf okkar. Við erum meira inni, erum nær hvert öðru og deilum sama loftinu.

En kuldinn hefur einnig meiri bein áhrif á líkamann. Miðað við niðurstöður rannsóknar á hegðun veira þá þrífast margar öndunarfæraveirur betur við lágan hita en við eðlilegan líkamshita.  Þetta þýðir að fyrstu varnarlínur líkamans verða mikilvægari en við höldum.

Eitt svæði er mjög mikilvægt í þessu samhengi, því það er þar sem veirur komast oft inn í líkamann. Þegar hitinn lækkar, veikjast ónæmisviðbrögð líkamans og það dregur úr blóðflæðinu. Þetta skapar betri skilyrði fyrir veirur til að fjölga sér. TV2 skýrir frá þessu.

Ekki bara höfuðið

Það er ekki bara höfuðið sem verður fyrir barðinu á kulda því niðurstöður rannsókna hafa sýnt að kaldir fætur geta veikt mótstöðuafl líkamans.

Veirur komast ekki inn í líkamann í gegnum fæturna en það virðist sem kuldinn setji af stað líkamlegt ferli sem gerir líkamann móttækilegri fyrir sýkingum.

Ef þú vilt draga úr líkunum á að veikjast á veturna, þá benda niðurstöður rannsókna helst á að:

Halda berskjölduðum svæðum líkamans heitum

Forðast langvarandi fótkulda

Þvo hendurnar vel.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar
Pressan
Í gær

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?