fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Læknir ráðleggur fólki að hætta þessu fyrir fertugt ef það vill lifa lengur

Pressan
Mánudaginn 8. júní 2026 07:30

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumir halda því fram að lífið hefjist fyrst af alvöru þegar maður verður fertugur. Við látum ósagt hvort það er rétt og eflaust hefur fólk mismunandi skoðanir á því.  Evan Levine, hjartalæknir, segir að fólk eigi að íhuga að hætta ákveðnum hlutum áður en það verður fertugt ef það vill lengja lífið.

Hann birti myndband á TikTOk þar sem hann sagði frá fimm hlutum sem hann ráðleggur fólki að hætta ef það vill tryggja sér heilbrigðara og ánægjulegra líf. Hann segist telja að fólk eigi mun meiri möguleika á að lifa lengur ef það fylgir ráðum hans.

„Fimm hlutir sem þú ættir að hætta fyrir fertugt – þrátt fyrir að það sé aldrei of seint að hætta,“ sagði hann að sögn Mirror.

Reykingar – Þetta er auðvitað eitt það augljósasta er varðar heilsuna. Levine sagði að það sé í sjálfu sér aldrei of seint að hætta að reykja en maður eigi samt ekki að bíða til sextugs með það. „Hættu núna,“ sagði hann.

Áfengisneysla – Næst beindi hann sjónunum að áfengisneyslu og benti á að það auki hættuna á krabbameini, sérstaklega hjá konum, hjartasjúkdómum og gáttatifi.

Fíkniefni – Levine nefndi einnig kannabis og önnur fíkniefni til sögunnar og benti á að kannabisneyslu auki líkurnar á hnignun hugrænnar getu og elliglöpum. Þá geti fíkniefni á borð við kókaín valdið banvænum hjartavandamálum.

Ofþjálfun – Of mikil hreyfing getur skaðað líkamann, sérstaklega langhlaup og það að lyfta mjög þungum lóðum að sögn Levine. Hann sagði þetta slíta mjöðmunum, hnjánum og fótum og auki hættuna á liðaverkjum. Langhlaup eykur einnig hættuna á gáttatifi að hans sögn. Hann ráðleggur fólki því að stunda hreyfingu með hóflegu álagi og ekki að lyfta mjög þungum lóðum.

Óhollur matur – Að lokum ráðleggur hann fólki að forðast ruslmat á borð við skyndibita. Hann bendir einnig á sykraða drykki sem eitthvað sem fólk á að forðast. „Þú ert fertugur núna, þú getur ekki lengur borðað allt sem þig langar í,“ sagði hann.

Síðan kom hann með lokaráð sitt um að fertugsaldurinn muni stýra því hvernig restin af ævinni verður: „Viltu 40 góð ár til viðbótar? Þá skaltu byrja núna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Fyrrum framkvæmdastjóri NATÓ varar við – „Þetta er hættulegt“

Fyrrum framkvæmdastjóri NATÓ varar við – „Þetta er hættulegt“
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini
Pressan
Í gær

Lík í tveimur hlutum og ekkert blóð – Hver myrti Elizabeth?

Lík í tveimur hlutum og ekkert blóð – Hver myrti Elizabeth?
Pressan
Í gær

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hundurinn þinn líkist þér miklu meira en þú heldur (og það er engin tilviljun)

Hundurinn þinn líkist þér miklu meira en þú heldur (og það er engin tilviljun)
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfullt mál líksins sem hvarf í skjóli nætur – Hvað varð um Julie Mott eftir að hún dó?

Dularfullt mál líksins sem hvarf í skjóli nætur – Hvað varð um Julie Mott eftir að hún dó?