

Antonio Conte gæti verið á leið frá Napoli aðeins tveimur árum eftir að hafa tekið við félaginu samkvæmt ítölskum miðlum.
Conte stýrði Napoli til ítalska meistaratitilsins strax á sínu fyrsta tímabili árið 2025 en gengi liðsins á nýliðnu tímabili hefur valdið vonbrigðum. Napoli endaði langt á eftir Inter í baráttunni um titilinn og nú er talið líklegt að hinn 56 ára gamli þjálfari yfirgefi félagið í sumar.
Samkvæmt Gazzetta dello Sport hafa Conte og forseti Napoli, Aurelio De Laurentiis, rætt mögulega brottför hans síðan í apríl. Conte hefur jafnframt opinberlega gefið í skyn að hann hafi áhuga á að taka við ítalska landsliðinu.
Þegar hann var spurður um laust starf landsliðsþjálfara eftir að Ítalía missti af sæti á heimsmeistaramótinu sagði Conte. „Ef ég væri forseti ítalska knattspyrnusambandsins myndi ég íhuga sjálfan mig.“
Talið er að þau ummæli hafi aukið spennuna milli hans og stjórnenda Napoli. Einnig hafa verið fregnir af erfiðu sambandi Conte og Romelu Lukaku eftir meiðslavandræði Belgans á tímabilinu.
Napoli hefur þegar hafið leit að mögulegum arftaka og er Maurizio Sarri sagður líklegasti kosturinn. Sarri stýrði Napoli á árunum 2015 til 2018 og starfar nú hjá Lazio.