
Starfsmenn sérstakrar fíkniefnadeildar spænsku lögreglunnar ferðuðust á þriðjudag frá Madrid til Tenerife og handtóku fjölmarga í bænum Playa San Juan, á suðurhluta eyjarinnar. Var látið til skarar skríða gegn stórum fíkniefnahring á eyjunni vegna gruns um fíkniefnadreifingu og peningaþvætti.
Canarian Weekly greinir frá.
Aðgerðin fól ekki eingöngu í sér handtökur heldur voru bankainnstæður fjölmargra manna frystar og hald lagt á fjölda lúxusbíla. Meðal bíla sem voru haldlagðir voru Lamborghini Urus lúxusjeppi og Brabus 600 frá Mercedes. Allmargir dýrir bílar frá BMW og Mercedes voru einnig haldlagðir auk tveggja mótorhjóla.
Spænska lögreglan hefur sagt skipulagðri brotastarfsemi á Kanaríeyjum stríð á hendur og er þessi stóra aðgerð liður í þeirri áætlun.
Sjá nánar hér.