
Yan Diomande, kantmaður RB Leipzig, er áfram orðaður við Liverpool.
Það má gera ráð fyrir að Liverpool eyði hárri upphæð í kantmann í sumar þar sem Mohamed Salah er á förum. Diomande er talinn ofarlega á blaði yfir hugsanlega arftaka.
Hann er aðeins 19 ára gamall en er þegar lykilmaður í Leipzig, sem er þekkt fyrir að þróa unga leikmenn og selja þá dýrt. Hefur hann komið að 20 mörkum í 32 leikjum á sinni fyrstu leiktíð í þýsku úrvalsdeildinni.
Diomande verður þó ekki ódýr og Leipzig er í sterkri samningsstöðu, þar sem samningur leikmannsins rennur ekki út fyrr en 2030.
Talið er að þýska stórliðið vilji fá um 87 milljónir punda fyrir þennan landsliðsmann Fílabeinstrandarinnar.